Heima er bezt - 01.03.2002, Blaðsíða 22
frá Akranesi, en hann hafði áður ver-
ið í flutningum um árabil milli Akra-
ness og Reykjavíkur.
Fagranesið hóf póst- og farþega-
flutninga um ísafjaröardjúp í ársbyrj-
un 1943 og sigldi öðru hverju til Jök-
ulfjarða, norður á Strandir, vestur á
firði og stundum alla leið til Reykja-
víkur að sumarlagi, en þá voru
fengnir minni bátar til Djúpferðanna
á meðan. Það eyðilagðist í bruna á
innanverðu ísafjarðardjúpi, eftir 20
ára þjónustu við Djúpbændur, árið
1963, og var dregið á landi í Reykj-
Gufubáturinn Olaf var í ácetlunar-
ferðum um Djúpið um skeið, áður en
Fagranesið I kom til sögunnar 1943.
Þetta skip varð síðar flóabáturinn
Drangur, hinn fyrsti með því nafni,
sem árin 1946-59 annaðist ferðir við
Norðurland.
arfirði. Mannbjörg varð.
Það sama ár var nýtt Fagranes, 144
tonna, smíðað til Djúpferða með
rými fyrir 100 farþega og 50 tonn af
vörum.
Djúpbáturinn annaðist ferðir um
Djúpið og víðar á þessum tíma, árið
um kring, tvisvar í viku og hafði við-
komu í Hvítanesi, Vigur, Ögri og
Æðey, Bæjum, Melgraseyri, Arn-
gerðareyri, Reykjanesi, Eyri í Mjóa-
firði og víðar, eftir því sem þurfa
þótti. Þess á milli sigldi báturinn um
Viðkomustaðir Djúpbátsins voru all-
margir á hinum ýmsu sveitabæjum
við Isafjarðardjúp, í Jökulfjörðum og
Ströndum, eins og næstu myndir bera
með sér. Flér er Fagranes 1 á leið að
Dynjanda í Leirufirði, snemma vors
um miðjan fimmta áratuginn.
Fyrsta Fagranesið annaðist Djúp-
ferðir í tvo áratugi 1943-63, ogfór
auk þess nokkrar ferðir til Reykjavík-
ur.
Vestijarðahafnirnar Bolungarvík,
Suðureyri, Flateyri og stundum til
Þingeyrar. Annars var megin verk-
efni Djúpbátsins að flytja farþega
milli hafna og nauðsynjavörur til
bændanna við Djúpið og afurðir
þeirra, mjólkina til ísaQarðar aftur.
Ennfremur var nokkuð um bílaflutn-
inga áður en akfær vegur var lagður
milli Amgerðareyrar og ísaijarðar og
gat báturinn flutt fimm meðalstóra
bíla í hverri ferð.
Talið er að fyrsta bifreiðin sem
flutt var sjóleiðina um Djúpið hafi
verið með Arthur & Fanny,
sumarið 1935.
Árið 1972 flutti Fagranesið
um 1200 bíla, rúmlega sex þús-
und farþega og um 1.150 tonn
af vörum, auk fjarflutninga, en
þetta ár flutti báturinn tæplega
þjár þúsundir sauðfjár.
Á áttunda áratugnum byrjuðu
flutningar Djúpbátsins að drag-
ast saman, m.a. vegna minnk-
andi byggðar og bættra akvega
við Djúpið.
Þegar Fagranes II, hætti ferð-
um í kringum 1990 kom þriðja
Fagranesið til sögunnar, sem jafn-
framt var bílferja, 656 tonn að stærð.
Rekstri þess var hætt 1999.
Djúpbáturinn h/f annaðist áætlun-
arferðir um ísafjarðardjúp í nær sex
áratugi, auk þess var flutt ferðafólk
til Jökulijarða og norður á Strandir,
118 Heima er bezt