Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2002, Page 13

Heima er bezt - 01.03.2002, Page 13
Auðunn Bragi Sveinsson: —A---- SVEITINNI Frásögn Ingibjargar Valdimarsdóttur. Aðfararorð skrásetjara: Eg er gestkomandi hjá Ingibjörgu Valdimarsdóttur, í Reykjavík, þar sem hún er stödd hjá kunningja sín- um. Eftir að hafa neytt veitinga, tök- um við tal saman. Ingibjörg er nú 16 ára og hin hressasta til líkama og sálar. Tekur hún að segja mér frá æsku sinni, sem var sannarlega eng- inn dans á rósum. Hún var alin upp á sveit, líkt og hin systkini hennar. Gef ég henni hér með orðið: - Faðir minn þáði af sveit, því að foreldrar mínir voru barnmargir. Þegar það gerðist, sem frá verður sagt hér á eftir, gekk móðir mín með tíunda barnið. Oddvitinn í Skarðs- hreppi taldi mikla nauðsyn til bera að skipta þessu heimili upp, til að létta á hreppnum. Móðurmóðir mín var til heimilis hjá okkur, einnig íbð- urfaðir minn. Hann lá veikur þetta sumar. Læknirinn taldi að um botn- langabólgu væri að ræða. Nú gerist það í október þetta ár, þegar móðir mín var alveg komin að því að fæða tíunda barnið (það fædd- ist 19. október) að við vitum ekki fyrr til en bátur kemur úr landi út í eyjuna, og voru þar á nokkrir menn. Oddviti hreppsins var þar með og til- kynnti hann, að þeir félagar væru komnir til að sækja Jóhönnu, ömmu mína, og flytja til Flateyjar, vegna þess að þar ætti hún fæðingarhrepp. Amma settist niður og grét. Mamma Úr œttfrœðinni, lesendum til glöggvunar: Nokkur, sem við sögu koma í frá- sögninni, auk sögumanns. Önnur mannanöfn þarfnast ekki skýr- inga: Faðir sögumanns: Valdimar Sigurðsson, f. 1898 Móðir: Ingigerður Sigurbrandsdóttir. Móðuramma: Jóhanna Ingibjörg Bæringsdóttir, fædd 29. júlí 1875 að Deildará í Múlahreppi, A- Barð. Látin 24. apríl 1943. Föðurafi: Sigurður Óli Sigurðsson, f. 2. jan. 1875, dáinn 12. maí 1946. Brynjólfur Haraldsson, oddviti í Skarðshreppi, Dalasýslu. Héraðslæknirinn í Flatey á Breiðafirði, Arngrímur Björnsson (1900-1972), Ólafur Bergsteins- son á Látrum Frásögnin gerist sumarið 1935, þegar sögumaður er 10 ára að aldri. Sögustaður: Rúfeyjar, undan Skarðsströnd í Dalasýslu. var einnig ákaflega hrygg, en þær gátu lítið gert. Áður en þetta gerðist, hafði oddvit- inn fengið Ólaf Bergsveinsson á Látrum til að sækja Jóhönnu og átti Ingibjörg Valdimarsdóttir. hún að fara að Látrum. En þá gerðist það að amma mín sagðist ekki fara og var mjög sorgbitin. Sagði þá Ólaf- ur á Látrum (Hvallátrum): „Ég tek enga manneskju með valdi!“ Hann klappaði á axlirnar á henni og bætti við: „Við skulum vona, að þú fáir að vera kyrr.“ Fór síðan heim og kom aldrei frek- ar að þessum málum, sem komið höfðu upp eins og skrattinn úr sauð- arleggnum. Þegar oddvitinn kom í næsta skipti Heima er bezt 109

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.