Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2002, Blaðsíða 51

Heima er bezt - 01.03.2002, Blaðsíða 51
innsæi gamals föður og fyrr en varir er sú stund á enda runnin. Hann kveður drengina með kossi á vanga og þakkar tengdadóttur sinni veitta ánægju. Asbjörg tekur tvíburana og leggur þá í vöggu þeirra, svo býður hún afa Jensen að koma með sér fram í eldhús og þiggja hress- ingu en hann afþakkar allar veitingar og kveðst ætla að eiga þær inni þar til næst. * * * Degi er tekið að halla, fiskibátamir byrjaðir að streyma inn fjörðinn. Afi Jensen er vanur að taka á móti Kjell syni sínum við landtöku og kýs að bregða ekki út af þeirri venju, svo lengi sem hann kernst niður að höfö. Þessu veldur sérstök tilfinning, sem er rótgróin í vitund hans, afleiðing eftir hörmulegt slys í íslensku vatnsfalli, endur fyrir löngu, þar sem hann missti æskuunnustu sína og beið þess aldrei bætur. Hann vildi láta einkason sinn velja annað ævistarf en sjómennsku og bauð að kosta hann til mennta á öðrum sviðum en hafið heillaði Kjell ungan að árum og að sjálf- sögðu var það hann sem endanlega réði vali sínu. Þrátt fyrir þetta hafa þeir feðgarnir alltaf verið sam- rýmdir og það ekkert breyst í tímans rás. Afi Jensen býst til brottfarar, Asbjörg fylgir gesti sín- um til dyra. Þau kveðjast með meiri alúð og hlýju en nokkru sinni fyrr og hefur þó frá fyrstu kynnum farið vel á með þeim. Afi Jensen hraðar sér á braut en Asbjörg stendur kyrr í dyrunum og horfir á eftir tengdaföður sín- um niður gangstíginn. Þessi heimsókn hans skildi eftir í huga hennar ógleymanlega frásögn, sem dýpkar skilning hennar á persónu afa Jensen og treystir vináttubönd þeirra. Blessaður gamli maðurinn, hana hefði ekki órað fyrir því að hann ætti svona átakanlega reynslu að baki, en þarna sannast hið fornkveðna, að enginn veit hvað í ann- ars barmi býr, hugsar hún og snýr inn í húsið til þeirra starfa sem hafa beðið óleyst á meðan hún svalaði fróð- leiksfýsn sinni. En Asbjörg getur ekki slitið hugann frá fortíð afa Jen- sen og nú er það sú fortíð hans sem hún þekkir af eigin raun sem svífur fyrir hennar hugarsjónum. Er hún kom fyrst með Kjell, þá unnusta sínum , hingað í Bjarnarijörð, var Solveig móðir hans orðin sjúklingur og átti um það leyti eftir læknisráði, að leggjast inn á sjúkrahús, en hún aftók það með öllu, kvað engan annast sig betur en Jen- sen eiginmann sinn og neitaði alfarið að nokkur annar kæmi þar nærri og þessu varð ekki haggað. Hitt fólkið á heimilinu, sem vildi veita aðstoð sína en fékk það ekki, fylgist með því fullt aðdáunar hve natinn Jensen var og þolinmóður í þessu mjög svo erfiða hjúkrunarstarfi. Hann stóð einn vaktina uns yfir lauk og þar var unnin hetjudáð. Tengdadóttirin tilvonandi kynntist Solveigu einungis sem sjúkri konu og þau kynnu urðu lítil. En heimili henn- ar bar því glöggt vitni að þar hefði hæfileikarík húsfreyja setið að völdum og haft efnalega úr nógu að spila. Hús þeirra hjóna var stórt og formfagurt, reist af byggingar- meistaranum Jensen Eyvik á íyrsta búskaparári hans og Solveigar, en áður en Solveig dó var hann byrjaður að leggja grunninn að fornaldarbæ sínum, eins og hann nefnir núverandi heimili sitt, en bærinn hefur vakið at- hygli margra, fyrir snilldar handbragð og listrænt gildi og ýmsir viljað eignast eftirlíkingu af honum. Asbjörg fær nú ekki að dvelja lengur við nægtabrunn minninganna, synir hennar kalla á mjúkar móðurhendur. Hún hraðar sér inn í svefnherbergið og sinnir ástrík þörf- um þeirra. Aður en því er lokið birtist Kjell, eiginmaður hennar. Hann er kominn heim af sjónum eftir fengsælan dag, og stund sælla endurfúnda runnin upp, í þessum vermireit ungrar hamingju. 2. kafli Vetrarmjöllin klæðir landið umhverfis Bjarnarfjörð hvítum kufli hreinleikans, frá efstu fjallabrúnum að nyrsta sjávarmáli. Aðfangadagur jóla er runninn upp, lognkyrrð og heiðríkja yfir láði og legi. Asbjörg klæðir syni sína hlýjum vetrarfatnaði. Þessir stóru og hraustlegu sjö ára drengir bíða þess óþreyjufullir að mega leggja af stað út í bjartan vetrardaginn. Þeir hafa fengið leyfi foreldra sinna til þess að fara í heimsókn til afa Jensen og dvelja hjá honum fram að þeim tíma sem hann er vanur að koma í árvisst jólaboð á heimili foreldra þeirra, en þangað hefur hann mætt stundvíslega um miðj- an aðfangadag frá því að þessi jólaboð hófust og tilgang- ur hans með þessu verið sá að bjóða aðstoð sína, hafi þurff að lagfæra eitthvað með smiðshöndum fyrir hátíð- ina. Þörf heför jafnan reynst vera nóg fyrir hjálpfúsar smiðshendur hans og aðstoðin vel þegin. Asbjörg fylgir sonum sínum til dyra, áminnir þá um að gæta sín vel í umferðinni og vera þæga og góða við afa Jensen. Drengirnir gefa móður sinni fögur fyrirheit um að gera þetta hvort tveggja, kveðja hana með kossi og taka á sprett niður gangstíginn. Asbjörg snýr inn í húsið. Þau hjónin ætla að nota tím- ann í fjarveru drengjanna til þess að skreyta jólatréð og koma þeim í þetta skipti svolítið á óvart með nýstárlegi skreytingu. Allt skal gert til að gleðja barnshjartað á ljóssins hátíð. * * * Lággeng skammdegissól gyllir hjarnbreiðuna. Afi Jen- sen gengur út á bæjarhlaðið, skyggir hönd fyrir augu og rýnir móti birtunni upp á veginn. Hann á von á tvíburun- um í heimsókn og er byijaður að gæta að ferðum þeirra. Jólaösinni er enn ekki lokið og töluverð umferð framhjá „fornaldarbænum,“ en drengirnir eru fyrir nokkru farnir að koma fylgdarlaust í heimsókn til afa og allt gengið að óskum í þeim ferðum. ' Framhald í næsta blaði. Heima er bezt 143

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.