Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2007, Qupperneq 13

Heima er bezt - 01.09.2007, Qupperneq 13
Frá Djúpalónssandi, í landi Einarslóns, skammt frá fœðingarstað móður Sigurðar. Furstamir hafi byrjað starfsemi sína hjá mér. En reksturinn gekk nú ekki alltof vel. Þama kom mikið af fólki sem vildi bara dansa, og það keypti ekki alltaf mikið af veitingum. Og það er ekki nógu gott fyrir svona veitingahúsarekstur. Þá er það að ég ákveð að gera eitthvað róttækt í málinu, og setja upp dansleik með Sniglabandinu og Andreu Gylfadóttur sem gestasöngkonu og átti þetta að verða fyrsta kúrekaball Reykjavíkur. Lét ég gera stór plaköt til auglýsinga og auglýsti að það yrðu ókeypis sætaferðir niður að Kolaportinu, svo fólk þyrfti ekki að kaupa sér leigubíl að Ártúnum, sem var upp í Hálsahverfínu. En þá gerist það að auglýsingin misferst eitthvað í uppsetningu hjá Morgunblaðinu, og þar er sett inn að hljómsveit kvöldsins verði Furstarnir. Og það passaði ekki saman við prógrammið og fór svo að nánast enginn mætti. Þetta varð náttúrlega ansi mikið tapkvöld, öndvert við það sem ætlunin var. Svo spilaði þama líka inn í að eigandi staðarins átti í erfiðleikum með að standa í skilum með kaupgreiðslumar, svo ég stoppaði ekki lengi þama. Kolaportið Ég fór því að starfa aftur í Kolaportinu, og er þar enn. Þar vinnum við saman, núverandi kona mín, Janina og ég, en hún er frá Litháen. Svo nú er ég nánast alveg hættur öllu matreiðslustarfi, enda er sjónin á því auga sem heilt er, farin að daprast. Eins og áður er sagt missti ég sjón á öðru auganu þegar ég lenti í slysi sem barn, og þurfti á síðasta ári að fara í aðgerð á heila auganu. Síðan er ég einhverra hluta vegna mjög háður dagsljósinu við störf, ljós frá ljósaperum trufla sjónina eitthvað. Stafar það líklega af því að augnbotninn er farinn að gefa sig, og við því er víst lítið að gera. Þannig að ég var komin með bara 30% sjón, og þurfti í framhaldi af því að láta skipta um augastein. Þá lagaðist sjónin vemlega, þannig að ég er kominn með 60-70 sjón aftur. Margvíslegt er það sem fram fer í Kolaportinu, en það er geysilega vinsælt og fólk kemur þangað í stórum stíl til þess að sýna sig og sjá aðra og versla vömr á góðu verði. Reyndar eru nokkrir óvissutímar núna um framtíð Kolaportsins, þar sem Tollstjóraembættið vill fá hluta plássins sem það hefúr, undir bílastæði fyrir starfsemi sína. Það myndi náttúrlega bara þýða það að það yrði að hætta starfsemi Kolaportsins, í öllu falli alveg um nokkra mánuði, á meðan á breytingum Tollstjóra stendur, og líklega alveg, ef aðstæður verða ekki viðunandi fyrir Portið á eftir. Reyndar er mjög dýrt að leigja í Kolaportinu, aðilar aðstöðunnar em svo margir. I fýrsta lagi á Ríkissjóður þetta, hann leigir til Reykjavíkurborgar, sem leigir svo hluthöfúm Kolaportsins, sem svo aftur leigja okkur, sem rekum básana. Og eins og gefúr að skilja verða allir að fá eitthvað fyrir sinn snúð, svo þetta er nú orðið býsna dýrt þegar á endann kemur. Kolaportið er löngu orðið stór hluti af lífínu í miðbænum. Ef það fer þá verður mikil breyting á bæjarbragnum þama. Og líka ef til kæmi hækkun á leigugjaldinu þá er sjálfhætt. Annar staður er ekki til sem passað getur undir svona starfsemi með sama hætti. En er á meðan er, og reikna ég með að vera þarna á meðan stætt er. Breyttir tímar En svona ef litið er tilbaka, yfir starfsama og viðburðaríka ævi, þá fínnst mér tvímælalaust árin í Glaumbæ, standa upp úr. Það var geysilega skemmtilegur tími og mikið fjör. Enda var það mikið áfall þegar Glaumbar brann. Ég átti heima vestur í Sörlaskjóli þegar það gerðist, og ég man að Oli Laufdal, veitingamaður, sem þá vann með mér í Glaumbæ, kom í leigubíl vestur eftir til að sækja mig, og við vorum eiginlega bara grátandi yfir þessu öllu saman, þegar við fórum á staðinn og sáum allt í logandi báli. En mér finnst líka allt orðið svo óskaplega breytt í dag frá því sem var á þessum árum, fólk og umhverfi er orðið svo allt öðruvísi, og þessi mannvonska sem tíðkast orðið í skemmtanalífinu, er hreint ótrúleg og gerir umhverfið dapurlegra. Það má segja að ég hafi orðið fyrir hálfgerðu menningarsjokki, þegar ég koma aftur til íslands eftir dvölina erlendis. Þetta var allt svo gífurlega breytt og að sumu leyti til hins verra, fannst mér. Nú getur enginn fýrirgefið neitt orðið, það er bara hefndin sem gildir. Líklega eru það eiturlyfin sem þarna eru farin að hafa áhrif á hegðan fólksins, það veit stundum varla nokkuð hvað það er að gera af sér. Svo er verið að koma með ýmis boð og bönn varðandi rekstur veitingahúsanna, og það getur stundum skapað meiri vandræði en gagn, t.d. nýlegt reykingabann á stöðunum sem sett var í gildi. En svona er nú lífið. Hver kynslóð á sína siði og háttu, og það er kannski ekki von að fráfarandi kynslóð felli sig alltaf við það sem hin nýja tekur sér fyrir hendur. Heima er bezt 445

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.