Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2007, Síða 21

Heima er bezt - 01.09.2007, Síða 21
Árni Helgason: —=_yj. Lárus Kjartansson Byggðin fyririnnan Eskifjörð varalltaf kölluð Kálkur. Þar voru fimm býli eða jarðir. Þessar byggðir tilheyrðu Reyðarfírði og einnig kirkjugarðurinn því byggðin skiptist við Bleiksá. Því var sagt að þeir sem létust færu til Reyðarfjarðar. Þetta var talið einkennilegt að Eskifjörður skyldi ekki eiga þessa byggð, enda kom það sér oft illa fyrir þá sem þurftu þaðan að leita atvinnu til Eskiþarðar, því á kreppuárunum var barist um hvem bita og þótti mér oft aumt að sjá þessa dugnaðarmenn og sérstaklega ungu strákana, þurfa að hverfa á braut þegar þeir ætluðu að fá vinnu við uppskipun eða útskipun sem menn sóttu í og þótti vel borguð þá. Eg öfundaði ekki verkstjórana þegar þeir þurftu að velja úr stómm hópi. Þá var fyrst tekinn einn úr hverri fjölskyldu og ef pláss var, þá komu nú fyrst erfiðleikamir. Eg vona að þessir tímar komi ekki aftur, enda þessi byggð nú í eyði og tilheyrir Eskifírði. Fyrsti bær að sunnanverðu vom Borgir. Þar bjuggu þá Friðrik Eyjólfsson og Lovísa Jóhannsdóttir. Hún var frá Áreyjum ein margra systkina. Böm þeirra vom þar og hefí ég nefnt Jóhönnu, sem giftist Georg bróður. Friðrik lést ungur og þá fóm Borgir í eyði. Láms Kjartansson, byggði sér nýbýli að Byggðarholti sem hann nefndi, en það var úr landi Eskiijarðarsels. Láms var giftur Þorbjörgu systur Lovísu og vom þau hjónin í kjallara Borgarhússins meðan þau gátu ekki flutt inn að Byggðarholti. Þorbjörg og Láms vom bamlaus en þau tóku að sér böm og eins gamalmenni, sem áttu þar gott skjól. Láms var einn af mínum tryggustu og óbrigðulustu vinum meðan hann lifði og sama get ég sagt um konu hans. Hann var um tíma á búgarði í Danmörku þar sem hann nam og kom heim fullur af ffóðleik og krafti til að takast á við verkefhi í dalnum sínum. Húsið í Byggðarholti var ekki stórt en afar komust þar margir fyrir. Láms var einn af stofnendum stúkunnar Bjarkar og ötull starfsmaður hennar meðan hún var við lýði. Við héldum meira að segja stúkufund sólskinsbjartan vordag, heima í túninu hans og þágum svo öll veitingar á eftir. Þau hjón hugsuðu mikið og lásu og alltaf kom fyrst í hugann hvað gæti orðið landi og þjóð til vegs. Ég á mörg bréf ffá honum eftir að ég kom hingað og tvisvar dvaldi hann hér eftir að hann missti konu sína, sem hann mat svo mikils, að töluð orð hennar vom honum eins og aðrir eiga vottfesta samninga. Mörgum Eskfírðingi hjálpaði svo Láms í jarðyrkju. Hann flutti út í bæ og afhenti uppeldissyni sínum Vilberg, jörðina. Láms keypti hús sem hann kallaði Mörk og þar dvaldi hann sín síðustu ár. Til að hafa eitthvað fyrir stafni tók hann að sér að bera út póst um bæinn og það gerði hann af sömu alúð og annað er hann kom nærri. Ég saknaði mjög þeirra hjóna og minnist þeirra ætíð með djúpri lotningu og gæti sagt margt um okkar viðskipti sem öll vom á einn veg. Láms hafði fastmótaðar skoðanir og kynnti sér öll mál vel áður en hann hóf umræður um þau, rökfastur með afbrigðum. Hjá þeim hjónum vom oft farkennarar fyrir sveitina og man ég sérstaklega effir Jóhanni Bjömssyni í Seljateigi, sem var afburða kennari og bjó sig vel undir hvem tíma. Að heyra þá Láms ræða landsmálin var sérstaklega ffóðlegt, en í bindindismálum vom þeir sammála. Ég sótti mjög eftir þeim kvöldum þegar þeir ræddust við. Þorbjörg var bæði traust kona og skynsöm og allan þann ffóðleik sem hún nam, mundi hún og miðlaði öðmm og það brást heldur ekki að þaó sem hún lagði til mála hitti í mark, enda má segja að Láms bar svo mikla virðingu fyrir konu sinni að um dýrkun var að ræða. Hann vitnaði oft í Þorbjörgu sína og það gat hann gert því ekki brást það sem hún lagði til málanna að það væri satt og rétt. Ég man eftir um 4 gömlum konum, sem höfðu skjól hjá þeim hjónum og var vel við þær gert. Ef þau hefðu ekki tekið þær að sér, veit ég ekki hvert þær hefðu lent, því þá var ekki í mörg hús að venda. Dreng tóku þau og gerðu að kjörbami, Vilberg að nafhi og ólu hann vel upp. Hann bjó seinna á Egilsstöðum og átti konu og böm. Hann lést ungur ffá fjölskyldu Heima er bezt 453

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.