Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2007, Síða 33

Heima er bezt - 01.09.2007, Síða 33
Gullborg. Þeir voru engin lömb að leika við, keppinautar hans. Allt annálaðir dugnaðar og fískimenn á góðum bátum með úrvals skipshafnir. En Binni mætti glaður og reifur til vertíðar, staðráðinn í því að láta ekki hlut sinn fyrr en í fulla hnefana. Þessi veiðikeppni varð ákaflega hörð og tvísýn lengi. Það var róið til austurs og vesturs, út og suður á yztu mið, inn undir Sand og út á heimamiðin. Hvergi átti þorskurinn griðastað. Vertíð þessari lauk á þann hátt, að enn varð Gullborgin aflahæsti bátur í höfn, með 780 smáiestir miðað við slægðan fisk með haus. Hafi fyrrverandi fískikóngar Eyjanna heitið honum erfiðri keppni 1955, voru heitstrengingar þeirra í byrjun vertíðar árið 1956 öllu ákveðnari. Þá skyldi til skarar skríða, vanda vel sóknina, leggja sig allan fram og sigra kappann frá Gröf í heiðarlegri, drengilegri en harðri keppni. Strax í byrjun vertíðar hófst þetta árlega íþróttamót skipstjóranna. Það var sótt á yztu mið, þrátt fyrir oftlega váleg veður, og teflt fram allri tækni og góðum tækjum. Hvergi var slakað á í neinu, og afli bátanna jókst. Gullborg tók forystuna, en hinir fylgdu fast eftir, og oft mátti vart á milli sjá. Menn fóru að tala um að líklega ætlaði Binni að verða hæstur, hann fiskaði daglega vel. En „þeir stóru“ komu líka með góðan afla. Hæstu bátarnir voru nú komnir með um 700 smálestir. Munurinn á bátunum var lítill enn. Svo fóru þeir í 800 smálestir, og jafnt og öruggt þokaðist Gullborgin ofar, 870 smálestir. Já, seigur er Binni. Almenningur var spenntur. Binni hlaut að sigra, hann var efstur. Og svo komu vertíðarlokin, uppgjörið. Benóný á Gullborgu skilaði hæstum afla ennþá! Fiskaði alls 953 smálestir. Hann hafði enn sannað óvéfengjanlega hina miklu fiskimannshæfni sína. Þetta var þriðja vertíðin í röð, sem hann skilaði tvöföldum meðalafla Eyjabáta, og var hann krýndur aflakóngur Eyjanna í þriðja sinn í röð. Frá fyrstu tíð vélbátanna og fram til ársins 1957 ertalið, að þrír formenn hafi orðið aflakóngar Eyjanna þrisvar úr röð, einn þrisvar í röð og fimm sinnum úr röð og tveir þrisvar í röð. Er þar af fullljóst, að tignarsessinn er mjög vandvarinn frá ári til árs, og hörð og mikil keppni. Arin 1906, 1912 og 1913 var Þorsteinn Jónsson í Laufási aflakóngur Eyjanna, þekktur formaður og annáluð aflakló. Árin 1910, 1922 og 1923 var aflakóngur Sigurður Ingimundarson í Skjaldbreið, einn af mestu fiskimönnum Eyjanna á sinni tíð. Árin 1918, 1920 og 1926 skipar öndvegið Árni Þórarinsson frá Oddsstöðum, siðar hafnsögumaður í Eyjum, þekktur aflamaður sinnar tíðar. Árið 1943 verður aflakóngur Eyjanna Jóhann Pálsson, skipstjóri á mb. Lagarfossi. Hafði hann verið í öðru sæti árinu áður á sama báti, mikill og snjall fiskimaður. Árið 1944 varð Jóhann aftur aflakóngur og enn árið 1945. Þetta þótti að vonum mikið afrek, og flaug hróður mb. Lagarfoss og Jóhanns Pálssonar víða um íslenzkar verstöðvar. Árið 1946 skipti Jóhann um bát, og var þá með Dverg, mótorbát, sem leigður var til Eyja. Þá var Jóhann í öðru sæti. Auðsjáanlega hefur hann ekki kunnað vel þeim sessi, því næstu vertíð, þ. e. 1947, skipti hann enn um bát og tók þá við mb. Jötni. Eftir harða sókn og keppni lauk vertíð svo, að enn varð Jóhann Pálsson aflakóngur og hafði þá setið í tignarstólnum fimm sinnum á sjö árum. Þetta þótti bera órækan vott um afburða fiskimannshæfni og dugnað. Árið 1950 kom nýr aflakóngur til sögunnar, einn af fræknustu fiskimönnum Eyjanna. Það var Oskar Eyjólfsson í Laugardal. Ekki lét hann þar við sitja, Heima er bezt 465

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.