Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Qupperneq 15

Heima er bezt - 01.02.2009, Qupperneq 15
Slórfjölskyldcm saman komin á góðri stund. Talið frá vinstri efri röð: Guðbjötg Elentínusardóttir, Sigurjón M. Sigurðsson, tengdaforeldar Elísabetar, Gubjörg Rafnsdóttir, Sigríður Rafnsdóttir, Fremri röð: Skúli og hundururinn Stanley, Rafn Sigurjónsson, eiginmaður Elísabetar, með Hrafntinnu, Sólveig Magnúsdóttir, Elísabet Skúladóttir, ogfremst Björgúlfur, sonur Sólveigar. A myndina vantar Berglindi, dóttur Rafns og Elísabetar. staðinn. Ég er því ráðinn án frekari málalenginga. En þar sem ég hafði ekki komist í sumarftí í mörg ár, þá samdi ég um að geta hafið starfíð eftir að ég hefði tekið mér sumarfrí. Það fór nú samt svo að ég gat ekki lokið sumarffíinu því það lá svo á að fá mig til starfa. Ekki hafði ég ætlað að vera þama mjög lengi, kannski hvíla mig svona eina eða tvær vertíðir frá sjómennskunni, og fara svo aftur í hana, því mér hafði verið boðið kokksstarf á björgunarskipinu Goðanum. En það fór nú svo að eftir eitt ár í starfi var ég orðinn yfirmaður í smiðjunni en átti samt síðar, þega að ég var kominn með góðan mannskap í prentið, eftir að skreppa sem kokkur á því skipi, svona mánuð og mánuð í senn. Ég hafði útvegað fóstursyni mínu starf og nám í vélsmiðju skömmu áður, en það starf endaði þannig að sá sem átti vélsmiðjuna, ákvað bara allt í einu að hætta og seldi allt heila klabbið. Svo starfsmennimir stóðu allt í einu uppi atvinnulausir. Ekki hafði veri búið að skrifa undir námssamning fyrir strákinn, svo það stóð eiginlega ekkert eftir af því. Ég ákveð því að taka hann til mín í prentnám hjá Anilínprenti. Ég var nýbúinn að kaupa mér íbúð í Breiðholti, en þá gerist það að við ákveðum að skilja, konan og ég. En við sonur hennar héldum áíram okkar samvinnu og hann var áfram í prentnáminu hjá mér. Þegar kemur ífam á árið 1985 er móðir mín komin á spítala og það sama ár deyr faðir minn. Móðir mín dó 11 ámm seinna. Þá erfúm við systkinin Hjalla, húsið þeirra, og sem ég hef sagt ffá hér áður. Það verður úr að ég kaupi hlut systur minnar í húsinu og hef búskap þar með þriðju konunni, Unni Jónsdóttur, um tíma en við skildum líka. Þegar þama er komið sögu er farið að fjara nokkuð undan Anilínprentinu, en þar höí'ðum við prentað alls konar umbúðapappír, t.d. fyrir bóksala, líka jólapappír og alls konar gjafapappír. Einnig prentuðum við geysilega mikið á sérstakan pappír fyrir fisklfamleiðendur, sem þeir pökkuðu inn í fyrir útflutninginn. En nú var plastið að byrja að hertaka markaðinn og það þýddi bara eitt fyrir okkur, að pappírinn hlaut að hverfa meira og minna úr pökkunarhlutverkinu. En þama er ég þó að vinna allt þangað til ég fór á eftirlaun, 68 ára gamall. Ég var svo eftir það með annan fótinn að hjálpa fóstursyni mínum í prentsmiðju sem hann hafði fest kaup á og var að því allt til 75 ára aldurs, þegar hann neyddist til að hætta sínum rekstri. Þá er það sem dóttir mín kemur mér í kynni við bókbandið og ég skellti mér út í að læra til þess og hef haft það svona sem hobbí í ellinni. Ég keypti mér litla íbúð í Búseta, sem ég flutti í fyrir nokkrum ámm og bý enn í, en til stendur reyndar að ég flytji innan tíðar í öldrunarblokk upp í Fumgerði, þar sem hægt er að fá smá þjónustu og eftirlit sem ég þarf orðið á að halda. Mér líst vel á það, því þar þekki ég vel til og þar get ég stundað áhugamál mitt, bókbandið. Heilsan er því miður eitthvað farin að láta á sjá. Fyrir nokkm fór ég að finna fyrir einhvetjum hjartsláttartmflunum sem reyndar löguðust af sjálfú sér en upp úr þeim rannsóknum kom svo í Ijós að ég var kominn með hvítblæði vegna rangrar starfsemi í skjaldkirtlinum, sem líklega haföi starfað vitlaust um margra ára skeið. Hef ég verið í meðferð við þessu að undanfömu og hefúr það gengið þokkalega en er nú farið að hafa áhrif á hendumar þannig að nú á ég orðið erfitt með að skrifa, sem mér finnst hábölvað, því ég hef alltaf gert talsvert af því að skrifa. Þetta hvítblæði leggst á taugkerfið í útlimunum, fótum og höndum og er þetta víst frekar óvenjulegt fyrirbæri. En ég hef nú ekki ósjaldan þurft að hafa hlutina eitthvað öðmvísi en aðrir og fer varla að taka upp á að hætta því, svona á gamals aldri. Heima er bezt 63

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.