Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Side 34

Heima er bezt - 01.02.2009, Side 34
ráð sitt og hans fyrstu viðbrögð voru að skamma tíkina. „Þegiðu, gijóthaltu kjafti,“ sagði hann fastmæltur og lagði myndugleika raddar sinnar í orðin. Tíkin hætti gleðilátum sínum, stansaði og horfði forviða á smalann með spum í augum. „Já, þegiðu og komdu til mín. Þú mátt ekki hræða kindumar sem hafa álpast út í tjömina, þá getur farið svo að þær ani enn lengra út í ófæmna og þá er þeim dauðinn vís. Ég ætla að hlaupa heim og segja honum pabba ffá þessu og þú kemur með mér og engin læti,“ sagði smalinn, og horfði fast á tíkina sem hlustaði með alvöru- og spekingssvip „Ég treysti mér ekki að ná kindunum upp úr tjöminni. Ég verð að ná í hann pabba.“ Að svo mæltu lagði smalinn af stað heimleiðis og hraðaði för sem mest hann mátti og tíkin skokkaði til hliðar, en þegar hún áttaði sig á að þetta var heimferð tók hún undir sig sprett og varð langt á undan, og þegar smalinn kom heim í hlað, másandi og blásandi, sat hún bísperrt uppi á bæjarhólnum, sæl og glöð og vildi greinilega láta taka eftir sér. Kvíðinn og sneypulegur sagði smalinn pabba sínum söguna án allra vafninga og honum til undrunar brást hann við á annan hátt en hann bjóst við. Pabbi hans, sem þótti örlyndur, hlustaði grannt á ffásögnina, sagði ekki neitt, en snaraðist inn í skemmuna, sem var geymsluhús, sótti kaðal eða reipi sem þar hékk á snaga og sagði svo, fastmæltur og ákveðinn, ekki annað en þetta: „Náðu í hann Gust, hann er með beisli uppi á túni og komdu með hann í einum hvelli.“ Ég lét ekki segja mér það tvisvar. Hesturinn gat verið hvumpinn og því var vissara að fara að honum með gát, en hann var svo önnum kafinn við grasbitið að hann virtist ekki taka eftir mér fyrr en ég tók í beislistauminn. Pabbi stóð á hlaðinu þegar ég kom hlaupandi með hestinn í taumi og um leið og hann vippaði sér á bak, sagði hann: „Hlauptu niður tröðina og opnaðu fyrir mig hliðið“. Ég horfði á eftir honum handan við ána þeysandi berbakt og berjandi fótastokkinn, hljóp svo upp á bæjarhólinn og fylgdist með honum þar til hann hvarf á bakvið Kríuholtið. Og nú fannst mér dagurinn lengi að líða. Hugurinn var hjá pabba og hvort honum tækist að ná kindunum upp Heimasæturnar á Stóra-Ósi, systurn- ar Sigurlaug og Hólmfríður Friðriksdætur Til hægri er Fanney Daníelsdóttir frá Bergstöðum á Vatnsnesi sem var kaupakona á bœnum um skeið þetta sumar. úr tjöminni. Ég var þreyttur og kvíðinn og leiður yfir atvikum dagsins, og þótt Dídó gerði sitt til að hughreysta mig með því að setjast hjá mér sunnan í túnhólnum og sleikja andlit mitt öðm hveiju, hafði ég enga ró í mínum beinum. En öll bið tekur enda og þegar komið var að kveldi sást hvar pabbi kom ofan úr svokölluðum Heygarðsflóa með kindahóp. Nú barði hann ekki fótastokkinn heldur lét klárinn lötra fót fyrir fót. Mig langaði að hlaupa á móti honum og fagna komu hans, en ég áræddi það ekki; mér fannst ég sekur og hafa brugðist trúnaði og taldi réttast að láta sem minnst á mér bera. Þegar pabbi kom í hlað, rennblautur og dasaður, spurði mamma hvemig gengið hefði. „O-það gekk nú allt saman og mátti þó ekki tæpara standa,“ sagði hann, og brosti eilítið drýgindalega til mömmu, „en Dolli minn,“ sagði hann - það var gælunafnið mitt - og leit til mín „nú ætla ég að biðja þig að fara með hann Gust upp fyrir girðingu og sleppa honum, en ná svo í kindurnar sem ég skildi eftir fyrir sunnan melinn og reka þær inn fyrir túngirðingarhliðið; þær fara sér hægt, enda em þær allar komnar nálægt burði.“ Nú fann ég með vissu að pabbi var ekki reiður við mig og hafði fyrirgefið mér. Eg þaut af stað og tíkin á eftir. Gustur Hvíldarstund í Hlíðum Vatnsnesfjalls. Talið frá vinstri: Greinarhöfundur, Zophonías Jósefsson á Bergsstöðum í Miðfirði, Guðmundur Friðriksson, síðar bóndi á Stóra-Ósi, Böðvar Friðriksson, síðar bóndi og hreppstjóri á Syðsta-Ósi, Guðrún Jósefsdóttirfrá Bergsstöðum í Miðfirði (Dúfa) síðar húsfreyja á Tannstaðarbakka við Hrútafjörð, Sigurlaug Friðriksdóttir (Lalla) síðar húsfreyja á Brekkulœk í Miðfirði. Lengst til hægri er Ingibjörg Daníelsdóttir frá Bergsstöðum á Vatnsnesi og var hún, ásmt systur sinni, Fanneyju, kaupakona um skeið þetta sólríka sumar á Stóra-Ósi. 82 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.