Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Qupperneq 40

Heima er bezt - 01.02.2009, Qupperneq 40
l :r ffáðiéúhiv vuwá ' Jón R. Hjálmarsson Ingimundur gamli Þorsteinsson Landnámsmaður á Hófi í Vatnsdal Við höldum eftir hringveginum norður yfir Holtavörðuheiði og förum sem leið liggur um Hrútaljörð, Miðfjörð, Línakradal og Víðidal og komum loks í þá láglendu og gróðursælu sveit sem kallast Þing og markast af Hópi að vestan og Húnavatni að austan. Skyndilega verður þá á vegi okkar gríðarleg hólaþyrping og það eru hinir víðfrægu Vatnsdalshólar sem sagðir eru fleiri en tölu verði á komið. Sunnan hólanna opnast Vatnsdalur sem er fögur sveit, sögufræg og búsældarleg í besta lagi. Um dalinn fellur Vatnsdalsá sem víðfræg er að fomu og nýju fyrir mikla laxagengd. Við höldum nú inn eftir dalnum austan árinnar og undir skriðurunnum hliðum hins mikilúðlega Vatnsdalsijalls. Úr fjalli þessu hafa fallið margar mannskæðar skriður í aldanna rás og í svonefndri Bjarnastaðaskriðu 1720 tepptist áin og þá varð til stöðuvatnið Flóðið, í utanverðum i dalnum. En við höldum áfram langa leið inn með hliðinni og léttum ekki fyrr en við komum að Hofi, fornfrægu höfuðbóli og landnámssetri heiðursmannsins Ingimundar gamla Þorsteinssonar. í Vatnsdæla sögu sem fjallar um Ingimund og afkomendur hans segir frá því þegar landneminn og fömnautar hans komu fyrstir manna í daiinn: „að þeir sáu þar góða landkosti að grösum og skógum; var fagurt um að litast; lyfti þá mjög brúnin manna.“ Það mun hafa verið um aldamótin 900 sem þessir föranautar komu i dalinn og æ síðan hefur dafnað þar mikið og fjölskrúðugt mannlíf. Ingimundur gamli var norskur maður. Faðir hans var kappinn Þorsteinn Ketilsson raums og móðir hans hét Þórdís og var dóttir Ingimundar jarls af Gautlandi. Þegar Ingimundur Þorsteinsson var á unga aldri spáði Heiður völva fyrir honum og nokkrum af félögum hans að þeir mundu allir setjast að í landi sem þá var enn ófundið vestur í hafi. Ingimundi þótti það ótrúlegt og kvaðst mundu sjá til þess að svo yrði ekki. Spákonan sagði að hann mundi ekki geta breytt þessu og því til sannindamerkis sagði hún að horfinn væri hlutur úr pússi hans sem síðar mundi finnast þegar hann græfi fyrir öndvegissúlum sínum í nýja landinu. Ingimundur kannaði gripi í pússi sínu og var þá horfín þaðan lítil Freysstytta af silfri. Ingimundur stundaði víkingaferðir á yngri árum og herjaði í vesturvegi með félaga sínum Sæmundi suðureyska. Þá var það eitt sinn er þeir snem heim úr herferð að Haraldur konungur hárfagri hafði lagt undir sig mestan hluta Noregs og bjóst til að heyja lokaorrustu við andstæðinga sína í Hafúrsfirði. Ingimundur vildi berjast með konungi, en Sæmundur ekki og skildi þar með þeim. Sæmundur barst seinna til Islands og gerðist landnámsmaður í Sæmundarhlíð í Skagafirði. En Haraldur hárfagri fór með sigur af hólmi og eftir orrustuna í Hafursfirði launaði hann stuðningsmönnum sínum hjálpina með ýmsum hætti. Meðal annars fékk hann Ingimundi gott kvonfang og gifti hann Vigdísi Þórisdóttur jarls þegjanda. En upp úr þessu greip Ingimund svo mikið óyndi og eirðarleysi að hann tolldi hvergi stundinni lengur. Haraldur konungur sem hafði heyrt um spádóm völvunnar hvatti hann þá til að leita forlaga sinna á Islandi. Ingimundur kvað það fjarri sér, en þó fékk hann tvo fjölkunnuga Finna til að fara hamfömm til íslands og finna þar hlut þann sem horfíð hafði úr pússi hans. Finnamir sneru aftur og höfðu fundið hlutinn en ekki náð honum. Þeir lýstu landslagi og staðháttum í dal einum, þar sem þeir sögðu að Ingimundur skyldi nema land og byggja sér bæ. Eftir þetta sá Ingimundur að ekki mundi stoða að flýja örlögin og bjó siglingu sína og félaga sinna til Islands. Þeir komu fyrir sunnan land og sigldu vestur fyrir Reykjanes og inn á Faxaflóa. Loks héldu þeir inn í BorgarQörð, þar sem Grímur háleyski, fóstbróðir Ingimundar, kom til móts 88 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.