Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Blaðsíða 21

Heima er bezt - 01.02.2009, Blaðsíða 21
Arið 1916 strandaði Goðafoss, skip Eimskipafélags Islands, á Straumriesi. Ibúar á Látrum og fleiri Aðalvíkingar, björguðu áhöfn og farþegum. Þótt langt sé um liðið, sjást enn Ieifar af skipinu í fjörunni. Nokkrir áhugasamir Aðalvíkingar reistu minnismerki um skólann í Aðalvík á aldarafmæli hans, árið 1999. Fólkið sem reisti minnisvarða um Aðalvíkurskóla, voru,frá vinstri talið: Friðrik Hermannsson, Þórunn Hermannsdóttir, Kristján Guðmundsson, Hinrik Vagnsson og Matthildur Guðmundsdóttir. Lengst til hægri er Kjartan T. Olafsson, sem kom þarna að sem ferðamaður. börnin á Látrum. Þaðan var örstutt leið niður að Melatjöm. Hún lá ofan við Grjótoddann sem var kambur upp frá fallegum og ljósum skeljasandi. Þegar Bandaríkjaher tók grjótið sem fyllingarefni í vegi og önnur mannvirki á ámnum 1954- 60, þá hvarf Melatjömin alveg og þar með skautasvellið okkar. Það er um hálftíma gangur yfir melinn og að Stakkadalsvatni og hann er álíka breiður ffá sjó og fram að vötnum. Flugbrautina á melnum bjó herinn til og notaði meðan á byggingu ratsjárstöðvarinnar stóð og hún er enn nothæf. Neðarlega á Naustabalanum voru dysjar, sennilega yfir Fransmenn. Þegar við vorum að leika okkur þama, sáum við oft mannabein sem fokið hafði ofan af. Við grófum þau aftur og settum grjót ofan á. Ef við höldum út brekkuna, komum við að myndarlegasta húsinu á staðnum, Vonarstjömunni. Húsið byggði Guðmundur Sigurðsson snemma á liðinni öld. Síðar missti hann það í erfiðleikum í útgerð sinni og komst það þá í eigu Sameinuðu verslananna á Isafirði. Þegar það fyrirtæki fór á hausinn eignaðist húsið Amór Kristjánsson, en hann rak þama verslun, útgerð og fiskverkun. Mágamir Hannes Sigurðsson og Sigurður Gíslason keyptu Látra árið 3887 og þá byggði Sigurður hús skammt utan við Vonarstjömuna og nefndi það Brekkuhús. Það reif Gísli, sonur hans, þegar hann varð símstjóri í Bolungarvík, og endurbyggði þar. Innri-Grænatótt er litlu utar. Þar fyrir ofan byggði Guðmundur Rósi Bjamason Steinhúsið og hóf þar búskap nýgiftur árið 1934. Þá fluttu og foreldrar hans til hans. Einnig bjó þar Kristín Jóhannesdóttir, kennari frá Skáleyjum á Breiðafirði, mikill snillingur í sinni grein. Skammt fyrir ofan Steinhúsið var Bamaskólinn. Hann var byggður árið 1899 af dugnaði og framsýni heima- manna og gefmn hreppnum skuldlaus. Grindina í húsið gaf Pálmi bóndi í Rekavik. Allt annað efni í húsið var gefíð sem og vinnan við smíðina. Við ytri sjóinn bjuggu tvær fjölskyldui og heimilisfeðumir vom Theódór Jónsson og Hermann Jakobsson. Oft var líka fólk í gömlu verbúðunum, þegar skortur var á húsnæði. A Ytri-Grænutótt var gott útsýni. Þaðan var horft til skipaferða á Heima er bezt 69

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.