Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Side 42

Heima er bezt - 01.02.2009, Side 42
himinninn Ástar og spennusaga að vestan grætur „Ráðskonan? Hver segir þetta? Úlfljótur sjálfur eða hvað? Sá skal nú fá orð í bæði eyru. Ég skal segja þér það, stúlka mín, að við Ulli emm svo gott sem marggift hvort öðm í gegnum árin, auk þess dettur mér síst til hugar að láta hann sleppa núna þegar við erum loksins að komast á græna grein tjárhagsiega.“ Andrea var fljót að hugsa. Nú mátti Gústa ekki sleppa við að útskýra þetta nánar. Hún sá að rauðu flekkimir vom famir að minnka svo hún var að róast. „Komdu með mér upp,“ sagði hún. „Ég býð í glas í tilefhi dagsins." Gústa hugsaði sig um og horfði lymskulega á Andreu. Svo sagði hún: „Okei, ég skal ekki erfa þetta við þig þó þú eigir að passa upp á móralinn. Það væri nú meiri hneisan ef það fféttist að stúlka í mínu húsi væri farin að leita á lækninn, harðgiffan manninn.“ Andrea var hætt að vera hissa á nokkmm hlut sem út úr Gústu munni kom, en alltaf fannst henni jafnfurðulegt hvemig Gústu tókst alltaf að snúa hlutunum við. „Rosalega er orðið jólalegt hjá þér manneskja,“ sagði Gústa þegar þær sátu í stofunni með sitt hvort glasið. Ekki nenni ég þessu pilleríi. Það er gott að einhver hefur geð í sér að nota þetta dót sem var í skápnum. Ég er alveg búin að fá nóg þama í versluninni af að sjá jóladraslið og kerlingamar innan úr dal gónandi upp um öll ijáfúr, eins og umskiptingurinn í sögunni „Átján bama faðir í álfheimum“. Maður fær sér nú ríflegan jólabónus út á að þurfa að umbera það.“ „Jólabónus!?“ Andrea varð eitt spumingamerki. 90 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.