Ný kynslóð - 01.10.1941, Síða 11

Ný kynslóð - 01.10.1941, Síða 11
Okt. '41, Ný kynslóA síður slæmir tímar fyrir okkur, sem ætlað er að hafi nóg fé undir höndum. • Gesturinn leit til hans biðjandi augum. Pað var eins og bæn speglaðist í þeim. Varir hans titruðu eins og í angist og málrómur hans var hás. — Ég ákalla yður við allt, sem yður er heilagt, að hjálpa mér. Litla telpan mín hefur það kannske ekki annars af. Hugsið aðeins til litla, saklausa barnsins. Djúp þogn, Hann horfði á gestinn festulegum augum. Hann hafði þegar tekið ákvörðun sína. — Eg- veit, að lífið er erfitt, sagði hann af skiln- ingi og samúð. Mér þykir það leitt að geta ekki hjálpað yður, af því að svona stendur á. En ég hef fyrir iöngu síðan tekið þá ákvörðun að lána engum, hver svo sem í hlut á cg hvernig sem á stendur. Mér þykir þetta leitt. Það getur líka verið erfitt að neita mönnum um hjálp, þó að maður neyðist til þess oft og einatt. Gesturinn stóð seinlega á fætur. Hann var niður- brotinn maður. Hann gekk þungum skrefum út að hurðinni, þar sneri hann sér við og horfði litla stund á hann djúpum, alvarlegum augunum, sem tómleikinn og hryggðin skein úr. Pað var eins og gesturinn ætlaði að segja eitthvað fleira, en svo sagði hann aðeins: — Verið þér sælir. — Sælir. Hurðin lokaðist á eftir gestinum, og þungt og vonleysislegt fótatak hans fjarlægðist.

x

Ný kynslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný kynslóð
https://timarit.is/publication/1866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.