Ný kynslóð - 01.10.1941, Page 15
Okt. ’41, Ný kynslóð
Svo leið og beið og blóð mitt kyrrast tók,
og bernskan hvarf með allar glettur sínar.
Þá settist ég við siðfræðinnar bók:
í syndadálkinn reit ég brellur þínar.
Og furðu margt var það, sem þurfti að skrá,
og þúsund blöð ég reit á augabragði
um þjófnað, rán og víg — margt varð þér á.
Að vitum mínuin tíðum blóðþef lagði.
En nú er ég orðinn gamalt gigtarskar
og get ei höndum beitt til þeirra iðna.
Og þar sem ekkert ráð mitt vænna var:
þú, vargur blóðs, 6kalt tilbeyra því liðna!
Svo sit ég hér við beðinn þinn og bíð
að bresti hinzti logi augna þinna.
Hve langvinnt er þitt dapra dauðastríð,
ó, dýrsta hugsjón æskubreka minna!
SENDIÐ Nýrri kynslóö ljóð, sögur
og greinar til birtingar.
11