Ný kynslóð - 01.10.1941, Síða 25
Okt. ’41, Nj kynslóð
Hver hefir leikið þig svona hart? Vínsalarnir mega
blyg’ðast sín fyrir að féfletta viðskiptavini sína. Væri
ég konungur, léti ég hengja þá alla.
— Pað er einmitt það, sem ég mun láta gera,
mælti Maurus og andvarpaði þungan. — Lánaðu mér
yfirhöfn þína, og ég mun verða við csk þinni.
— Ætlar þú að láta hengja þessi hrakmenni?
Hver ert þú?
— Ég er konungurinn.
Dim starði undrandi á hann.
— Hefur þú ekki séð mynd mína á gullpeningunum?
— Eg hef aldrei eignazt gullpening, mælti betlar-
inn um leið og hann fékk konunginum yfirhöfnina,
Maurus hraðaði sér til lystihúss Rogusar. Mikill
mannfjöldi hafði safnazt saman við garðshliðið, enda
þótt þetta væri mjög árla morguns. Fólk ræddi sam-
an 'í hálfum hljóðum sem í eftirvænting. Konungur-
inn bar kennsl á nokkra af hinum trygglyndu hirð-
mönnum sínum. Þeir véku úr vegi fyrir honum,, svo
að yfirhöfn hans óhreinkaði ekki skrautklæði þeirra.
Maurus barði á hliðið krepptum hnefa og hrópaði
hárri röddu:
—• Ljúkið upp án tafar. Eg er konungurinn.
— Aumingja maðurinn, mælti varðmaðurinn og
hló við.
Maurus sneri sér að þeim, sem viðstaddir voru,
fullur örvæntingar.
— Þekkið þið mig ekki, hóf hann máls. — Kæru
þegnar mínir, ég er konungur ykkar.
Honum var svarað með almennum hlátri.
Kabul. Ég gaf þér óðalsjörð fyrir örfáum vik-