Ný kynslóð - 01.10.1941, Síða 39
Okt. '41, Ný kynalóð
Fara þessar bækur
FRAMHJÁ YÐUR?
1 bókaflóðinu á næstu tveim mánuðum mun.
ef að vanda lætur, bera mest á þeim bókum,
sem mest eru auglýstar, en hætt við að aðr-
ar, ekki verri bækur, gleymist og seljist aldrei.
En það eru líka til bækur, sem geta farið
framhjá mönnum, ekki vegna þess að þær
gleymist heldur vegna þess að þær seljast upp
áður en varir, án þess að bumbur séu barðar
fyrir þeim.
Það eru bækurnar, sem ekki þarf að auglýsa
til þess að þær seljist.
Meðal slíkra bóka eru í ár alveg tvímæla-
laust þessar tvær:
ÖRN ARNARSON: ILLGRESI
öll ljóð skáldsins, gömul og ný í einu bindi, og
OUT OF THE NIGHT
eftir JAN VALTIN í þýðingu Emils Thorodd-
sen, bók, sem hefur selzt mest allra bóka, sem
út hafa komið í Ameríku á þessu ári.
Upplag beggja þessara bóka, sem selt verð-
ur í bókaverzlunum, verður hverfandi lítið.
Þeir, sem vilja veja öruggir um að fá þær, ættu
að panta þær strax hjá útgefanda.
Menningar- og fræðslnsamband
alþýðn