Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Blaðsíða 3
1. tbl. skólaárið 1958-1959
SENN KOMA JÓLIN
JÓLIN hafa veri'ð og eru dýrðlegasta hátíð
ársins. Á hverju kristnu heiinili hljómar ár
hvert guðspjallið um þann, sem fæddist í Betle-
hem fyrir 1958 árum. Að vísu er það óralang-
ur tími, en minningin um fæðingu frelsarans
hefur lifað með mönnunum allt til þessa dags.
Og margt jólaljósið hefur verið tendrað, jafnt
í lágum torfbæjum sem háum sölum. jólin eru
einnig serstök hátíð barnanna. í gamla daga
fengu þau mikinn og góðan mat á jólum, þótt
annars væri oft lítið að borða, og á fslandi var
það siður að gefa börraunum kerti, samanber:
Það á að gefa börnunum brauð,
að bíta 'i á jóiunum,
kertaljós og 1 -joöir. rauð
svo komist . au úr bóiunum.
Enn þann dag í da~ eru börnunum sagðar
sögur um jólasveina, er flestir sögðu að væru
þrettán. Sá fyrsti kemur þrettán dögum fyrir
jól og bætist svo eir^ vi.ð á hverjum degi þar
til þrettán eru komnir á sjálfa jólanóttina. Svo
fara þeir að tínast burt, einn á dag og sá síð-
asti á þrettándanum. En aðrir telja, að þeir
seu ekki nema niu og bendir til þess þula þessi;