Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Blaðsíða 14

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Blaðsíða 14
14 - HRINGIÐAN - HANGIKJÖTIÐ OG HERINN Það var einn a£ þessum nóvember- dögum, þegar rignir nóg til þess að ég verð að fara í gömlu kápunni í bæinn og skrýða höfuð mitt hinni þýðingarmiklu regnhettu. Ég lít á klukkuna. Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem ég er að missa af lestinni. NÚ verður rnaður víst að bregða undir sig betri fætinum, og til stöðvarinnar hleyp ég ofsahratt. Þegar svo loks er komið á leiðarenda kemur í ljós, að ég hef framkvæmt vinnu, sem engin not eru í; vagnsins er ekki von fyrr en eftir 5 mín. Flestir, sem hér eru viðstaddir, virðast afar óhamingjusamir á þessum drottins degi. já meira að segja daman þarna undir regnhlífinni, er að vorkenna veslings "bjudílokkunum" sínum, en eins og kunn- ugt er þrífast þeir sjaldan vel í svona loftslagi. Nokkrir lífsreyndir sveita- bændur ræða um garnaveiki í sauðfé, og einhver kona hefur gleymt þvottinum á snárunni. Og þannig mætti lengi halda áfram að lýsa óhamingju fólksins hér. En upp stytta öll él um síðir og eftir þessar löngu 5 mínátur, stöndum við, þetta sama fólk, öll undir sömu regnhlífinni, þ.e.a. s. þaki strætisvagns - ins. Og ná er að sjálfsögðu öll áham- ingja gleymd og grafin, þar sem allir sitja í þægilegum sætum og bruna áfram í þessu furðuverki nátímans. Ég hef ekki ennþá orðið aðnjótandi sæl- unnar, þar sem ég stend hér fyrir fram- an gildan kassa, sem eindregið vonast eftir 1, 75 í gogginn. já það er vissu- lega sárt,að sjá auðæfi sín renna niður í þennan kassa. En gleymt er þá gleypt er og ég hugsa ekki meira um það. Ég tek mér sæti við hlið dómunnar með regnhlífina, og ná kemst ég að því, að hán á franskt ilmvatn, en hvort hán not- ar varalit 1 eða 2, get ég ekki sagt þér, því að ná stendur hán upp og hringir bjöllunni. Við erum reyndar stödd niðrá Laugavegi. Ég færi mig nær glugganum og horfi á umferðina. FÓlk af öllum stéttum, allt frá slæpingjum til ösku- kalla, gengur hér hiutleysislega hvert fram hjá öðru. Og verzlanirnar með sínum aðdráttaraflsmiklu gluggum þjóta framhjá augum mér, unz við erum kom- in að miðstöð allrar hringiðunnar, Lækjartor gi. Klukkan hér er skelfing venjuleg klukka með tvo vísa, en engu að síður er hán afar þýðingarmikil. Ef hán er vitlaus verður um leið allt vitlaust hér á torginu. FÓlk ákallar bílstjórana og biður guð að hjálpa sér. Og ungar meyjar á hælum í líkingu við skýja- kljáfa Manhattaneyjunnar verða iðulega að reyna mikið á jafnvægi sitt við slík tækifæri. En eigi tjóar þetta, ef ég man rétt, hefur mér verið falið að velja vænt hangikjötslæri til helgarinnar. Ég stekk át ár troginu, sem hefur fyllzt á ný af masandi fólki. Fyrir eyrum mér hljómar þríraddaður kórsöngur, hér er um að ræða bílflautur, blaðastrákasöng og her hjálpræðisins. Að þessu sinni hann skinnháfu Óli, sem nær hæstum tón, við hinn alkunna texta sinn : Morgunblaðið, Alþýðublaðið, Þjóðviljinn og Tíminn. En þið skuluð ekki halda, að það sé Óli, sem fólkið þyrpist um. Og nei, nei, sei, sei, nei, það er her- inn. Hver persónan þarna er annarri frumlegri, og ekki síður tónar þeir, er frá þeim koma. Gítar er notaður til undirleiks og er það óvanaleg notkun á slíku hljóðfæri. Síðan hættir allur söngur á torginu, en fólkið í hernum heldur áfram að tráa. Klukkan heldur áfram að ganga, en þó stend ég hér ennþá, með hangikjötslæri við hönd, strandaglópur á torgi lífsins. Ein í iðunni. MÖGULEIKI er fyrir kennara að skrifa í bekkjarskrána fja. Það þýðir : fjarverandi í anda Gunnar : Hvaða tíð er að borða? Stefán : já, eh, er það ekki máltíð ?

x

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar
https://timarit.is/publication/1858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.