Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Blaðsíða 6
- 6 -
Eftirtaldir nemendur skipa NEFNDIR
nemendafélagsins :
Malf undanefnd :
Hrafn Magnusson 3. -Z, formaður
Tryggvi Karlsson 3, -L,
Kristján Guðmundsson 3.-L
Hans Indriðason 3. -Z
Guðrún Guðlaugsdóttir 2.-A
Hjalti N. Zophaníasson 2.-A
Orn Johnson 3. -L
Taflnefnd :
Trausti Björnsson 3. -X, formaður
Sigmar Björnsson 3. -X
Sveinn Sigurkarlsson 3. -Z
Pall Bragi Kristjónsson 2. -B
Skemmtinefnd :
Ólafur Gústafsson 4. -B, formaður
jón Kaldal 3. -X
Matthías Matthíasson 3. -E
Aðalheiður Johannesdóttir 4.-B
Sveinbjörn Rafnsson 2. -B
Þorsteinn Ingólfsson 2. -A
Magnús Ólafsson 2. -E
Sveinbjörn Kristjánsson 2. -G
Ár shátíðarnefnd:
Þorgils Axelsson 4. -A, formaður
Hrafn Magnússon 3. -Z
Ólafur GÚstafsson 4. - B
María Hjálmarsdóttir 4. -C
Aðalheiður jóhannesdóttir 4. -B
jón Kaldal 3. -X
Matthías Matthíasson 3. -E
Andrés Indriðason 3. -X
íþróttanefnd :
LÚðvík LÚðvíksson 3. -E , formaður
Ágústa Þorsteinsdóttir 4. -C
Helgi Gústafsson 4. -A
Vilhjálmur Grímsson 3.-Z
Þuríður ísólfsdóttir 3. -F
Grímur Valdimarsson 3. -Z
ÁRSGJALD NEMENDAFÉLAGSINS
Eins og allir vita, hækkaði ársgjald
nemendafélagsins úr 10 í 20 krónur,
samkvæmt hinum nýju lögum nemenda-
félagsins, sem gengu í gildi í haust.
Þegar farið var að innheimta ársgjald-
ið, kom heldur en ekki aukahljóð í
strokkinn, því svo virtist, sem nemend-
ur skildu ekki fyllilega, hvað átt væri
við með þessu. Sumir voru jafnvel
þeirrar skoðunar, að gjald þetta rynni
beint til skólans. Fyrir þennan mis -
skilning þarf að girða rækilega, því að
skólinn sem slíkur á hér engan hlut að
máli. Eins og glögglega er tekið fram
á kvittuninni, er þetta gjald eingöngu til
nemendafélagsins. Rennur helmingur
þess í ferðasjóð, en hinum helmingnum
er ætlað að greiða útgáfukostnað skóla-
blaðsins, sem allir nemendur eru
áskrifendur að.
Mjög er áríðandi, að kvittunin kom-
ist ekki á flæking, því að nemendafé-
lagið getur á engan hátt tekið ábyrgð á
glötuðum kvittunum. Sem sagt :
nemendur greiða 20 króna ársgjald til
nemendafélagsins ; innifalið er árs-
gjald að skólablaðinu og ber að sýna
kvittunina við afhendingu blaðsins.
Nú ætti þetta að liggja nógu Ijóst
fyrir.
HÆST BYLUR í TÓMRI TUNNU
Öflun efnis í þetta fyrsta BLYS
á skólaárinu gekk mjög treglega fyrst
í stað. Á öðrum stað í blaðinu er
greint frá verðlaunasamkeppninni og
örlögum hennar. Má segja, að tveir
bekkir eigi mestan heiður af þessu
blaði. Eru það landsprófsbekkirnir
3. -X og 3. -L. ÞÓ mega menn alls
ekki álíta, að þetta sé bekkjarblað ;
slíkur hugsunarháttur er reginvitleysa.
Þessi vanmáttarkennd þegar nemendur
segja "ég get ekker'c skrifað", er ill —
þolanleg. Gott félagslíf getur aldri borið
barr sitt, ef enginn fæst til að gera
neitt. Hér þarf að ráða bót á, og það
strax. Auðvitað þarf það ekki að vera
neinn listrænn skerfur til heimsbók-
menntanna ; svo strangar kröfur eru
alls ekki gerðar. Til dæmis væri mjög