Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Blaðsíða 11
- 11
9. gr.
Kosning bekkjarfulltrua skal hefjast í
4. bekk. Tveir hinir atkvaeðahæs tu í
hverjum 4, bekk skulu síðan vera í'fram-
boði til stjórnarkjörs. Fer þá fram
leynileg kosning í 4. bekk og kýs hver
nemandi þrjá í aðalstjórn. Sá verður
formaður, er flest atkvæði hlýtur, sá
gjaldkeris er næstflest fær, og hinn
þriðji hæsti ritari. Síðan skulu þessir
þrír gangast fyrir kosningum í öllum
öðrum bekkjardeildum skólans.
Skulu kosnir tveir bekkjarfulltruar í
hverjum bekk, og skal aðalfulltrui vera
í framboði, þegar kosnir eru meðstjórn-
endur og varaformaður, sem vera skal
úr 3. bekk.
10. gr.
Allar kosningar skulu vera skriflegar og
ræður einfaldur meirihluti atkvæða úr-
slitum.
U- gr»
Aðalfund skal halda fyrir 1. desember
ár hvert, og þá jafnan í sambandi við
málfundi. Fráfarandi formaður flytur
þar skýrslu stjórnarinnar, reikningar
felagsins frá fyrra ári eru birtir og
lagabreytingar ræddar, ef þörf þykir.
Rætt skal um framtíðarstarfsemi félags-
ins og skal hinn nýkjörni formaður hafa
framsögu um þau mál.
12- gr.
Nemendafélagsgjaldið skiptist þannig :
4/10 í félagssjóð, 2/10 í bókasafnssjóð,
1/10 í verðlaunasjóð og 3/10 í áhalda-
sjóð.
13. gr.
Tekjur af skemmtunum renna allar í
ferðasjóð og skiptast þannig :
Nemendur 4. bekkjar hljóta allan ágóða
af árshátíð skólans, en tekjur af öðrum
skemmtunum skiptast eftir vissum regl-
um milli 2. bekkjar og landsprófsdeilda.
14. gr.
Um hina ýmsu sjóði :
a) Bokasafnssjóði skal verja til styrkt-
ar bókasafni skólans.
b) Úr verðlaunasjóði skulu að jafnaði
veitt ár hvert verðlaun fyrir frábær
félagsstörf, íþróttaafrek, ritgerðir
o.fl.
c) Áhaldasjóði skal verja til kaupa á
ýmsum tækjum til eflingar félags-
starfseminni, svo sem hljómplötum,
upptökuvélum, listaverkum til fegrun-
ar skólanum o.fl. eftir því, sem
þörf krefur.
d) Ferðasjóði er ætlað að styrkja
ferðalög, sem nemendur fara að
loknum vorprófum.
15. gr.
Stofna má áhugadeildir innan félagsins
um ýmis mál, svo sem bindindi, íþrótt-
ir, skák og fleira, enda komi samþykki
félagsstjórnarinnar til.
16. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 7. nóvember 1958.
GILDI SKÓLANNA, frh. af bls. 4.
höfum hlotið í veganesti x skólunum,
og auðvitað öll með þeim ásetningi
að verða góðir og nýtir þjóðfélagsþegn-
ar.
Ef við setjum markið hátt, er sig-
urinn vís.
Þorhildur V. Sigurðardóttir
III. - E.