Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Síða 5
5
HFé laq,Amá í
AÐALFUNDUR NEMENDAFÉLAGSINS
Aöalfundur Nemendafélags G. A. var haldinn í byrjun novembermánaðar. Hofst
fundurinn á því, að Andrés Indriðason, fyrrverandi formaður félagsins, gaf skýrsluyfir
starfsemina. Félagslífið stóð með miklum blóma á síðasta skólaári; 10 dansæfingar
voru haldnar, málfundur voru 4 og tvö Ijósprentuð Blys komu át. í sambandi við árshá-
tíðina smíðuðu nokkrir piltar úr 4. bekk leiktjöld fyrir félagið með aðstoð smíðakennara ;
skólans, Halldórs Guðjónssonar, en Magnús Pálsson leiktjaldamálari gerði teikningar
og veitti aðstoð við að mála tjöldin.
Að lokinni ræðu Andrésar flutti Sveinbjörn Sigurjónsson, skólastjóri, yfirlit yfir
reikninga félagsins og greindi frá hinum ýmsu sjóðum þess.*
Að lokum var borin fram tillaga til breytinga á hinum gömlu lögum nemendafé-
lagsins. Var hún einróma samþykkt og eru lögin í heild birt á öðrum stað hér í blaðinu.
Samkvæmt þeim hækkar ársgjald nemendafélagsins úr 10 í krónur 20. Eru nú allir
nemendur skólans áskrifendur að Blysinu, og er verð þess innifalið í árgjaldinu.
Að loknum aðalfundi hófst málfundur um félagslífið í skólanum. Lauk honum um
10 -leytið.
* I. Nemendaf élags sjóður
Rekstrarreikningur 1957-58
Tekjur af skemmtunum
(inngangseyrir, gosdrykkir, sælgæti o.fl. )
Rekstrarútgjöld (hljómsveit, keyptir gos-
drykkir og sælgæti o.fl. ) ............
Veittir ferðastyrkir......................
Tekjur af "Blysi" ........................
Hagnaður á skólaári.......................
Kr.
Gjöld T e kj u r
65. 514, 00
47. 440, 88
16. 456, 00
494, 07
2. 111, 91_______________
66.008,07 66.008,07
Efnahagsreikningur pr. 7/11 1958
Sparisjóðsbækur nr. 78688 og 79941 ......
Sjóður ...................................
Hrein eign í byrjun skólaárs kr. 3. 130, 00
Hagnaður á skólaárinu....... - 2. 111,91
Kr.
Eignir Skuldir
4.704, 19
537, 72
5. 241, 91
5.241,91 5.241,91
II. Fastir sjóðir ( Áhaldasjóður, Bokasafnssj., Félagssj., Ferðasj., Verðl. sj.):
Hrein eign í byrjun skólaárs ............................ 29. 375, 98
Tekjur á skólaárinu (árgjöld nem., sek silfurmerki, vextir) 7.227,72
Alls Kr. 36.603, 70
Varið til bókakaupa og leiksviðsbúnaðar ................. 9. 658, 40
Eignir fastra sjóða við lok skólaárs (í Búnaðarbanka ) Kr. 26.945, 30