Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Side 22
22 -
ÞANKABROT UM LEIKFIMI
"Áfram gakk, einn - tveir - einn - tveir - einn - tveir------------staðar
nem, einn - tveir. " Gráhærður maður með grátt nef, í grárri peysu og gráum
skóm -- semsé Vignir Andrésson leikfimikennari er að hugsa um að tala við okkur
striplingana. ( Það er svo voða sjaldan, sem hann segir nokkurt orð. )
"Þið getið bara aldrei verið eins og þið eigið að vera --■------------------
Ég er samstundis svifinn upp í draumaskýin á meðan Vignir er að
tala. Vignir, ja það er nu merkilegur maður. Fyrir skömmu var hann
að kenna nokkrum strákum leikfimi. Eftir að kempurnar höfðu teygt sig
og beygt eins og brjálaðir menn nokkra stund, hrópar Vignir skyndilega :
"Standið í réttstöðu. " Margir kapparnir voru teknir að lýjast mjög og
voru ekki mjög árennilegir tilsýndum. Þá hrópar Vignir aftur :
"Standið nú ekki alveg eins og fyrrverandi bóksalar. . . " Ha-ha-ha.
-----------------------------------aðalatriðið er að vera eðlilegur. "
Vignir er hættur að tala, og ég stekk niður úr draumaskýinu. Við eigum að fara
að hlaupa---------------------. Við erum komnir á mitt gólfið, og nú á að æfa
nýja æfingu, einhvers konar fuglabisniss í höggmyndastíl og hugurinn reikar aftur
upp í skýin ----------------------
Hvaða rétt hefur leikfimin á sér í gagnfræðaskóla? Leikfimin er
að vísu mjög holl fyrir líkamann og í rauninni bráðnauðsynleg til að
hressa upp á mannskapinn, en hvað er eiginlega verið að gera með prof
í leikfimi? Við verðum alveg jafnt Atlas-byggðir eða vanskapaðir, þó að
prófdómari segi, að við fáum 2 eða 7. Svo eru allar þessar fagurfræði-
legu æfingar. Leikfimin er aðeins til þess að lífga og hressa upp kúrist-
ana og afspenna galgopana. Við erum látnir æfa æfingu, sem líkist mest
samblandi af ballet og kríu-flugi. Úr þessu verður geysi-stórbrotin högg-
mynd, og svo er okkur skipað að æfa þetta heima---------------------
--------------------- "Ætlarðu að standa svona í allan dag?" Það er Vignir
að öskra og ég svíf í hendingskasti niður úr skýjunum. Ég var einmitt að æfa
stellinguna, sem ég lýsti áðan, en eins og höggmynda er vani, gleymdi ég mer
alveg og stóð í sömu fuglabisnissstellingunni í heldur langan tíma. "Að rimunum,"
öskrar Vignir, og við röltum á okkar stað eins og beljur á bás. Vignir hrópar:
"Snúið ykkur að rimunum. Farið nú í mótvinkilhangandiarmbeygju. " Við hoppum
í réttstöðu, og ég er kominn upp í skýin-----------------------
Mikið fádæma, skelfing og ósköp er nú Vignir mikill bókmennta-
frömuður. Þetta djúpskyggna nýyrði, mótvinkilhangandiarmbeygja, er svo
glæsilegur skerfur til bókmenntanna, að það er stórfurðulegt, hvað sænska
akademían ætlar oft að ganga fram hjá Vigni með NÓbelsverðlaunin.
--------------tíminn líður og við teygjum okkur og beygjum, fettum og
brettum alveg miskunnarlaust. Hver æfing eykur "sportbrjálæðið" í manni. Við
finnum svo greinilega, hvernig 49. vöðvi talið að ofan er að styrkjast.
Sólon.