Heimili og skóli - 01.02.1946, Blaðsíða 7
HEIMILI OG SKÓLI
3
Hér má enginn trufla.
Þær eru að æfa flugið áður en þær
taka sig upp héðan yfir hafið. Þær
skiptast á um að fljúga í fararbroddi,
fallega og fimlega, og hinar allar
fylgja, hlýðnar þeim lögum, sem Guð
hefur sett þeim. Hér eru engar and-
stæðar fylkingar, heldur allt ein heild
og undravert samtsarf. Þetta ferst
þeim allt svo giftusamlega, að ég
treysti því öruggt, að förin mikla tak-
ist vel til suðlægra sólarlanda og þar
megi þær glaðar halda jól.
Já, lítið til fuglanna í loftinu og
lærið af þeim: Fögnuð yf'r lífinu,
áhyggjuleysi, trúmennsku, þraut-
seigju, hugprýði, fórnfýsi, samúð, sam-
starf og margt fleira fagurt. Allt þetta
hefur Guð innrætt þeim — og okkur
líka, svo framarlega sem okkur er ætl-
að að vera fremri þeim, eins og jesús
kenndi. Reynum að koma auga á
Guð og vilja hans bak vúð það allt. Og
þversköllumst því ekki gegn honum
vitandi vits og drýgjum syndina rnóti
heilögum anda. Mennirnir hafa verið
á glötunarbarmi og eru það enn,
nema þeir snúi við og reyni að hlýðn-
ast þessum lögum, sem Guð lífsins og
kærleikans setur.
„Takið sinnaskiptum og trúið fagn-
aðarboðskapnum," sagði Jesús Krist-
ur. Þá fyrst lifum við sönnu menning-
arlífi.
Nýr afgreiðslumaður.
AfgreiSslumannaskipti hafa nú orðið við
Heimili og skóla. Steinþór Jóhannsson
kennari hefur látið af því starfi, enviðtekur
Sigurður Jónsson skrifstofumaður, Eyrar-
landsveg 29, og ber því að snúa sér til hans
með allt, er við kemur afgreiðslu ritsins. Ei-
ríkur Sigurðsson kennari annast aftur inn-
heimtu fyrir ritið, eins og verið hefur.