Heimili og skóli - 01.02.1946, Blaðsíða 25
HEIMILI OG SKÖLI
21
.. ....— . ..................
„,Hvitur fyrir hærum, kvikur í hreyfingum,
bjartur yfirlitum, svipheitur, eldfjörugur,“
svo muna menn hann, ritsnillinginn, bænda-
höfðingjann sögufróða og þjóðskörunginn,
FINN JÓNSSON á Kjörseyri:
ÞJÓÐHÆTTIR OG ÆVISÖGUR
FRÁ 19. ÖLD
hið mikla og merkilega ritsafn hans, sem um langan aldur hefir lifað á vörum
þjóðarinnar undir nafninu Minnisblöð Finns á Kjörscyri, er nú koniið á bóka-
markaðinn. — Þetta fjölskrúðuga minningasafn hans, sem allir bókelskir menn,
allir, sem unna landi, þjóð og sögu, allir þeir, er dást að svphreinu máli, ramm-
íslenzkum stíl og lifandi frásögn, hafa svo lengi hlakkað til að fá að sjá. — Þessu
mikla afbragðsverki er skipt í þrjá meginhluta, er nefnast:
1. Sagnaþœttir. — 2. Þjóðhœttir um og eftir
rniðja 19. öld. — 3. Þjóðsagnir,
og er hver þeirra stórt ritverk fyrir sig, sem höfundur hefir svo aftur skipt í
smærri þætti: Sjálfsævisaga. — Þættir af Suðurlandi. — Þættir af Suðurnesjum. —
Þættir úr Strandasýslu. — Daglegt líf á Suðurlandi. — Daglegt líf og lifnaðarhættir
á Suðurnesjum. — Reimleikar og aðsóknir. — Huldufólkssögur. — Fyrirboðar og
forspár, o. fl. — Hver þessara þátta er svo í nrörgum köflurn, og gefa fáein heiti
þeirra, gripin af handahófi, nokkra hugmynd um fjölbreytnina og það, hvílíkur
sagnasjór þessi bók er. — Heklugos 1845. — Mýrdælingar. — Fyrsta kaupstaðarferð
mín. — Erlendir ferðamenn. — Flökkufólk. — Þrír umrenningar. — Frá Þuríði
formanni. — Stafnessbændur. — Búi prófastur og stjúpsynir hans. — Tveir dal-
bændur. Húsakynni. — Ferðalög. — Mataræði. — Skógarvinna. — Veizlur. — Festa-
mál. — Menntun. — Þangskurður, — Sjósókn og veiðarfæri. — Réttir. — Klæðn-
aður. Lestaferðir. — Selveiðar. — Skemmtanir. — Örnefni. — Ymsar sagnir, og
fjölmargt annað fróðlegt og skemmtilegt.
Þetta rnikla rit er nœr 500 bls., rneð fjölda rnynda
og teikninga af samtiðarmönnum Finns,
Símoni Dalaskáldi, Coghill gamla, Þuríði formanni o. fl. — Myndirnar teiknaði
Finnur sjálfur, þessi óvenjulega listhneigði og gáfaði bændahöfðingi, og einnig
fjölda af búskaparáhöldum og verkfærum og vinnutækjum til sveita og sjávar. —
Það myndasafn eitt saman gerir bókina að þjóðmenningarsögulegum kjörgrip.