Heimili og skóli - 01.02.1946, Blaðsíða 9
HEIMILI OG SKÓLI
5
hans frá sex ungum börnum. VarEgill
þá sex ára gamall. Eftir lát manns síns
fluttist móðir Egils vestur í Eyjafjörð,
en hann fór að Stafni í Reykjadal til
Páls H. Jónssonar frá Jarlsstöðum í
Bárðardal og konu hans, Guðrúnar.
Ólst Egdl upp hjá þeim hjónum fram
til tvítugsaldurs.
Egill var snennna bókelskur og nám-
fús, og þegar Gagnfræðaskólinn á Ak-
ureyri tók til starfa, sótti Egill um
upptöku í skólann og stundaði þar
nám tvo næstu vetur. En veturinn
1909—1910 stundaði hann nám í
Kennaraskólanum í Reykjavík og
lauk kennaraprófi þaðan vorið 1910.
Næsta haust gerðist liann farkenn-
ari í Bárðardal og kenndi þar í 5 ár.
Þá flutti hann til Akureyrar og var
heimiliskennari þar í 3 vetur. Haustið
1919 fluttist hann svo til Húsavíkur
og kenndi þar við barnaskólann sam-
fleytt í 20 ár, en haustið 1939 var hann
skipaður kennari við barnaskóla Ak-
ureyrar og hefur gegnt því starfi
síðan.
Þrjú sumur veitti hann forstöðu
barnaheimili á Laugum í Reykjadal.
Voru þar börn frá Reykjavík, er þar
dvöldu af styrjaldarástæðum.
Arið 1915 kvæntist Egill Aðal-
björgu Pálsdóttur frá Stóruvöllum í
Bárðardal, dóttur Páls H. Jónssonar
hreppstjóra og Sigríðar Jónsdóttur
konu hans, hinni mestu myndar- og
sæmdarkonu.
Þótt Egill hafi gegnt ýmsum störf-
um um dagana, hefur kennslustarfið
þó verið aðal lífsstarf hans og um leið
það hugþekkasta, kærasta og gleðirík-
asta af öllum hans störfum, enda hef-
ur hann ekki kastað til þess höndun-
um. Ég hef kynnzt mörgum ágætis
kennurum, en engan þekkt, er taki
Agli Þórlákssyni fram um áhuga, sam-
vizkusemi, skyldurækni og vandvirkni
í starfi sínu. Kennarastarfið hefur ver-
ið honum heilög köllun, sem hann
hefur fórnað öllum tíma sínum og
kröftum. Og þó að hann hafi nú
kennt samtals í 37 ár og ætti því að
vera farinn að fá nokkra æfingu við
það starf, telur hann sig þó ekki hafa
ráð á því enn þann dag í dag, að ganga
tll starfs að morgni, án þess að hafa
búið sig rækilega undir daginn, búið
sig undir hverja kennslustund.
Sumir vildu nú ef til vill telja slíkt
einkenni á lélegum kenanra. En svo
er þó ekki. Þetta er aðalsmark úrvals
kennara. Og heldur myndi Egill vaka
heilar nætur en koma óundirbúinn í
tíma.
Af námsgreinum mun honum vera
kærast móðurmálið og kristin fræði, á
þeim námsgreinum tekur hann eng-
um stjúpmóðurhöndum.
En Egill er ekki aðeins góður kenn-
ari, hann er um fram allt góður mað-
ur, óvenjulega kærleiksríkur mann-
vinur, dýravinur og blómavinur. Hon-
um þykir vænt um allt, sem lifir, alla
smælingja, og þó allra vænzt um börn-
in. Ég held, að enginn þjóðhöfðingi
hafi um sig svo glæsilega og valda
hirð, að hann sé ánægðari en Egill
mitt. á meðal litlu nemendanna sinna.
Og ef honum þykir vænna um nokkra
eina tegund barna en aðra, þá myndu
það helzt vera litlu, vangefnu og van-
þroska börnin, því að svo mikill sál-
fræðingur er Egill, að hann veit, að
þau þurfa helzt á nærgætni og ástúð
að halda.