Heimili og skóli - 01.02.1946, Page 8

Heimili og skóli - 01.02.1946, Page 8
4 HEIMILI OG SKÖLI HANNES J. MAGNÚSSON: Egill Þorláksson sextugur „Sælir eru hógværir, því að þeir munu landið ería.“ Ætíð koma mér í hug þessi spekiorð Fjallræðunnar, þegar Egill Þórláksson kennari verður á leið minni. Og ef það er hógværð- in, sem reynist þyngst á metunum, þegar þeim arfi verður úthlutað, mun Egill vissulega standa þar nærri að fá ríflegan arfshlut. En með því að hann er-allra manna ólíklegastur t’l að hyggja á land- vinninga, hvort sem það er nú á himni eða jörðu, skal ekki frekar rætt um það. Og nú er hann að verða sextugur þessi hógværi og hjartahlýi maður, eða nánar til- tekið hinn 6. marz næstkomandi. Og þó að heimurinn liafi orðið hávaðasamari og hofmóðugri með hverjum liðnum áratug, hefur Agli þó tekizt að lifa þessi 60 ár, án þess að reka olnbogann í nokk- urn af samferðamönnum sínum, og ekkert hefur verið honum fjær skapi en að auglýsa verðleika sína og taka þátt í því kapphlaupi um völd og mannvirð’ngar, sein svo mjög hefur einkennt síðustu árautgi. Hann hefur verið maður þagnarinnar, sem vinnur af innri þörf og ást á hlutverkum sín- um, og mér er nær að halda, að hon- um sé það kærkomnari gjöf að fá bros og h'lýtt handtak frá barni lieldur en riddarakross, jafn\el þótt hann væri með stjörnu. Egill er Þ ngeyingur að ætt. fæddur að Þóroddsstað í Kaldakinn 6. marz árið 1886. Foreldrar hans voru Ný- björg jónsdóttir og Þórlákur Stefáns- son, er síðast bjuggu á ísólfsstöðum á Tjörnesi. Þar andaðist Þórlákur faðir þakklátt litlu

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.