Heimili og skóli - 01.02.1946, Qupperneq 14
10
HEIMILI OG SKÖLI
rækt við tilfinningalíf barna og ung-
menna, reyna að beina tilfinningum
þeirra í rétta átt og til hinna hollustu
og hreinustu uppspretta. Og þá skyldu
menn ekki gleyma því, hversu áríð-
andi það er, að trúartilfinningin sé
glædd og henni beint í áttina til hinn-
ar æðstu uppsprettu, í áttina til guðs,
því að það er vitanlega líka hægt að
beina henni í allt aðra átt, til hinna
verstu skurðgoða, eins og ljósast hefur
komið fram á hinum síðustu tímum í
einræðisríkjunum, þar sem trúað er á
skepnuna í stað skaparans. Og sú
mikla hætta vofir jafnan yfir, að þessi
háleita og guðdómlega tilfinning sé
slitin úr öllum tengslum við skynsem-
ina og gerð að blindu ofstæki, þar sem
samúðartilfinningin og siðgæðistil-
finningin er troðin undir hæl. Það er
því brýn uppeldisleg nauðsyn, að trú-
artilfinning sé glædd í sterkum tengsl-
um við siðgæðistilfinninguna. Takist
það svo vel, að hvort tveggja njóti sín
í samræmi við dómgreind og skyn-
semi, er það hinn öruggasti vörður um
siðgæði einstakra manna og heilla
þjóða.
„Viljinn skapar manninn“, segja
sumir uppeldisfræðingar. Og víst er,
að skammt er hægt að komast vilja-
laust, því að jafnvel afbragðs gáfur og
hæfileikar njóta sín ekki og verða til
lítils, ef sterkan vilja vantar. Og þótt
oft sé lítið tillit tekið til vilja barna og
unglinga í ýmsum efnurn, þá vitum
við þó, að allt ágæti þeirra er í raun og
veru fólg.ð í viljaþrekinu. Þess vegna
verður að sinna þessum merkilega
þætti í uppeldinu. En það er oft erfitt
að magna viljann, og getur hver
stungið hendi í eigin barm um það. En
eitt er jafnan víst, að á undan hverri
vilja-athöfn fer tilEnningaalda, og að
heitar tilfinningar eru jafnan skilyrði
fyrir sterkum vilja. Því sterkari sem
siðgæðistilfinningin er, því þrótt-
meiri verður viljinn til að hafna öllu
ljótu og röngu. Því vænna sem barn-
inu þykir um foreldra sína eða kenn-
ara, því öflugri verður vilji þess til að
gera þeim til geðs. Þetta er alkunna.
En þar ineð er þá líka auðsætt, að það
er heimskulegt að „berja barn til bók-
ar“, sem svo var kallað, og eigi síður
hitt, hve geysilega þýðingu það hefur
fyrir vilja og allt athafnalíf æskunnar,
að lögð sé rækt við tilfinningalíf henn-
ar. Því sé það rétt, að viljinn skapi
manninn, svo sem hinir merkustu
uppeldisfræðingar halda fram, og að
tilfinningar þurfi að vekja viljann til
lífs og athafna, þá hljótum vér að
skilja til fulls, hvílíkur geysilegur
orkugjafi heilbrigt tilfinningalíf er til
eflingar mannlegum þroska og at-
hafnaþrótti þjóða.
(Framhald).
Eining.
Fyrir skömmu er út komið 1. hefti 4. ár-
gangs Einingarinnar og flytur að vanda
margar ágætar greinar. Fyrir fjórum árum
var stofnað til útgáfu þessa blaðs af Stór-
stúku Islands, Iþróttasambandi Islands,
Ungmennafélögum Islands og Sambandi
bindindisfélaga í skólum. Blað þetta hefur
aflað sér mikilla vinsælda, enda er það boð-
beri menningarinnar á öllum sviðum. Ræðir
það jöfnum höndum bindindismál, íþrótta-
mál, heilbrigðismál, trúmál og siðgæðismál
alls konar. Ritstjóri er Pétur Sigurðsson er-
indreki, og hefur honum með sínum alkunna
eldmóði og áhuga tekizt að gera Eininguna
að góðu blaði.