Heimili og skóli - 01.02.1946, Page 22

Heimili og skóli - 01.02.1946, Page 22
18 HEIMILI OG SKÓLI vandvirknin ein skapað eldri bréfun- um þann blæ, er þau hafa. Maður get- ur víða ekki varizt því að hugsa, að málfarið sé ósjálfrátt endurkast af því, að hafa lilýtt á upplestur fornrita og þjóðsagna, án þess þó að um sundur- gerð 'eða eftiröpun sé að ræða. En víst er það, að hrynjandin í máli, sem vel er lesið upphátt, nær ólíkt fastari tök- um á þeim, sem á hlýða en þá er þeir lesa hið sarna með sjálfum sér. Er það sambærilegt við það, að brageyra óval- inna manna æf'st svo, að ekki skeikar, við að heyra ljóð luifð yfir að stað- aldri. Mætti því óhætt leggja meiri áherzlu en víða er gert við móðurmáls- kennslu í barna- og unglingaskólum á upplestur úrvalsrita að málfæri — og vel er það ráðið, að tekið var að lesa fornrit okkar að staðaldri upp í út- varpið. Að sjálfsögðu verður að viðurkenna, að dómsályktun sú, sem dregin var með þessum samanburði, er hvorki óvefengjanleg né algild, þegar af þeirri ástæðu, að samanburðurinn tek- ur ekki yfir nema mjög takmarkað svæði af landinu. Að minni hyggju fer dómurinn þó ekki svo f jarri al- mennum sanni,aðhann gefi ekki ríku- legt tilefni til umhugsunar: Teldist það staðreynd, að móðurmálskennslan í barnaskólum landsins bæri víðast hvar ekki haldkvæmari ávöxt en náð varð með hinni stopulu og ótryggu heimilakennslu áður, liggur í augum upjri, að eitthvað brestur á um, að kennsluaðferðin sé við liæfi barnanna. Víst er um það, að íslenzk alþýðu- heimili áður fyrr, jafnvel þau, sem engan orðstír unnu sér þá, geymdu ýmis andleg veiðmæti innan veggja, sem ávöxtuðust frá kynslóð til kyn- slciðar. I> jciðsögur, rímur, kvæði og frá- sagnir voru þar engin kennsluatriði. Engum var sett fyrir að læra þetta — en fólk lærði samt meira og minna, fjöldinn allur. Og þetta vakti ímynd- unaraflið, forvitnina, spurnarhneigð- ina, en allt það er undirstöðuskilyrði þess, að menn geti veitt þekkingu og fróðleik varanlega viðtöku og bætt við af eigin ramleik. Bækur, einhverjar bækur, voru þá mörgum manni sem svaladrykkur, (og svo er því betur enn), en þær voru svo torgætar, að engin hætta var á, að menn drykkju í sig leiða. I>etta var skóli fólksins, sem þó enginn skóli var í venjulegri merk- ingu, heldur óafvitandi þáttur í dag- legu lífi. Engunr skynbærum rnanni kernur í hug, að horfið sé aftur til skipulags- levsis eldri kynslóða um fræðslu barna og ungmenna, þótt sýna mætti fram á, að áranguripn standi ekki ávallt í æskilegu hlutfalli við þá fyrirhöfn, sem nú er þeim í té Iátin á þessu sviði uppeldisins. Ei að síður er það lær- dómsríkt, einkum fyrir skólamenn, að íhuga, hvað það hefur verið í eigind- um og aðferðum umkomulítilla al- þýðuheimila fyrr á tíð, sem hefur áorkað því, að fólkið, sem ólst upp við hinn þrönga námskort þeirra, varð fyllilega eins vel sendibréfsfært og þeir, sem síðar hafa hlotið marg- falt ríkulegri skilyrði til að verða það. Talið er, að í Bandaríkjunum muni nú vera um 600 þúsund ólæknandi ofdrykkjumenn.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.