Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 7

Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 7
HEIMILI C)C. SKOLI 51 að sýna þessum börnum fullkomið réttlæti, því að réttlæti er það oftast talið að láta eitt yfir alla ganga. Rétt- ara væri að seja, að við yrðum að sýna þessum börnum óbrigðulan kærleika, bæði í heimili og skóla, aldrei þó í formi meðaumkunar, því að það getur orðið til þess, að börnin fari að kenna í brjósti um sig sjálf, en það er þeim ekki hollt. Meðferð og kennsla vangefnu barn- anna er alþjóðlegt vandamál. Aðrar þjóðir hafa reynt að leysa það, og þá fyrst og fremst með því að stofna sér- staka skóla fyrir þessi börn, eða sér- staka bekki innan hinna venjulegu skóla, sem á Norðurlöndum nefnast Hjelpeskoler eða hjelpeklasser, sem við gætum nefnt hjálparskóla og hjálparbekki. Til þessarar kennslu hafa þeir sérmenntaða kennara og mun ég ef til vill síðar segja frá þessum skólum, sem ég kynntist í utanlor minni s.l. vetur. Reynslan í Osló sann- ar, að þau börn, sem koma frá þessum skólum og bekkjum eiga auðveldara með að komast áfram en önnur van- getin börn, sem hljóta uppeldi sitt og fræðslu í venjulegum skólum. Þetta gæti verið bending um, hvert stefna ber, bending um ótvírætt gildi sér- kennslu fyrir slík börn. Aðeins í Reykjavík gæti verið um sérstakan hjálparskóla að ræða fyrir vangefin biirn, en í stærri skólum utan Reykja- víkur væri hægt að hugsa sér hjálpar- bekki, enda sums staðar, komnir á. í Barnaskóla Akureyrar voru t. d. s.l. vetur tveir hjálparbekkir. En gallinn er aðeins sá, að við höfum hér á landi enga sérmenntaða kennara í þessari grein enn sem komið er, en verðum að treysta á brjóstvitið eitt, sem ég raun- ar ber alltaf mikla virðingu fyrir. En þar sem hvorki er hægt að koma við hjálparskólunr né hjálparbekkjum, ætti alveg tvímælalaust að gefa þessum börnum kost á einhverri aukakennslu — nokkra tíma á viku. Ef fá börn væru í þeim hópi, ætti það að geta rétt þau nokkuð af og komið að meira gagni en miklu fleiri tímar í fjölmennum bekk með börnum, sem lengra eru komin. Annars ættum við að sýna þessum börnum þá mannúð' að leysa þau frá liinum niðurlægjandi prófum, sem þeim er fyrirskipað að taka. í skóla einum í Kaupmannahöfn kom ég í bekk, þar sem 30 14 ára drengir voru saman komnir. Þetta voru engir náms- hestar, og jaess var heklur ekki krafizt af þeim, að þeir sýndu ]>ar nein afrek, en þarna var unnið af kappi, og vinnu- gleði virtist mikil. Kennarinn benti mér á einn dreng þarna í bekknum, og sagði mér, að þetta væri nú síðasti skóladagurinn hans. En þetta var í fe- brúar. Daginn eftir átti hann að fara í bakaraiðn, sem hann hafði haft auga- stað á um nokkurt skeið, og nú var hægt að taka á móti honum jrar. Það var ekki minnst á próf þarna. Dreng- urinn hvarf beint af skólabekknum út í starfið. Fyrir hálfum mánuði hafði annar drengur horfið á sama hátt og farið í aðra iðngrein — einnig próflaus. Kannske hefur hann haft eitthvert vottorð frá skóla sínum um góða hegð- un og sæmilega kunnáttu í móðurmáli og í reikningi. Það var líka nóg. í íslenzkum fræðslulögum er svo fyr- ir mælt, að barn, sem ekki nær eink- unnunni 5 í móðurmáli og reikningi upp úr 12 ára bekk, skuli sitja aftur í

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.