Heimili og skóli - 01.08.1953, Qupperneq 11
HEIMILI OG SKÓLI
55
SIGURÐUR GUNNARSSON, Húsavík:
Víðavangsskólar.
Dagan 21.—25. apríl s.l. hélt Kenn-
arasamband Noregs (Norges lærerlag)
námskeið fyrir væntanlega formenn
„lejr“skóla í hinu glæsilega félags-
heimili sínu á Tranberg yið Gjövik.
Stendur það á yndisfögrum stað, með
útsýn yfir Mjösa.
Kennarasambandið sýndi mér þá
miklu vinsemd að bjóða mér, sem gesti
sínum, þátttöku í móti þessu. Þar sem
ég var mjög lítið kunnur þessari skóla-
stefnu, þáði ég að sjálfsögðu hið ágæta
boð með þökkum. Ég þóttist fullviss
um, að það yrði mjög ánægjulegt að
ferðast alllangt inn í hið fagra land,
dvelja nokkra daga með nokkrum
starfssystkinum, og kynnast athyglis-
verðri skólastefnu, sem alltaf er að
ryðja sér meira og meira til rúms. Eg
varð þar heldur ekki fyrir vonbrigð-
um .Mótið var í alla staði hið ánægju-
legasta. Aðalfyrirlesari og leiðbein-
andi var Mogens Pedersen, skolein-
spektör, frá Kaupmannahöfn. En auk
hans fluttu erindi nokkrir norskir
kennarar. Þá var og farið í smá ferða-
lög um nágrennið. Þátttakendur voru
urn 20 víðs vegar frá Noregi.
Víðavangs- (Lejr)-skólastefnan er
upprunnin í Englandi. Eyrsta tilraun-
in er gerð árið 1906, með telpnabekk
frá Grange Road School í Breadford.
Tilraunin gafst svo vel, að ,,lejr“-skól-
inn varð eftir það fastur liður í sum-
arstarfi skólans. Með sjálfstæðum at-
hugunum og staríi, bæði einstaklings-
lega og í litlurn hópi, skyldu nemend-
ur læra á bók náttúrunnar sjálfrar, og
dvelja með leiðbeinendum sínum, að
mestu úti í ríki hennar, um nokkurra
daga skeið. Síðan hefur skólaform
þetta átt miklum og r axandi vinsæld-
um að fagna og breiðzt út til margra
landa.
Segja má, að hugmyndin um skóla
af þessu tagi hafi legið í lofti um þetta
leyti. Hinn mikli uppeldisfræðingur,
Lord B. Powell, hafði þá nýstofnað
skátahreyfinguna, sem hreif mjög hugi
manna. En eins og kunnugt er, er upp-
eldisgildi hennar ekki sízt fólgið í
þeim áhuga og þeirri virðingu fyrir
útilífi og náttúruskoðun, senr einkenn-
ir alla sanna þátttakendur hennar.
Af Norðurlöndunum var Danmörk
fyrst til að taka upp „lejr“skólastefn-
una. Þangað barst hún í janúar 1929
og náði þar fljótt miklu fylgi og vin-