Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 12

Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 12
56 HEIMILI OG SKÓLI sældum. Námskeið voru haldin til að kynna hana, og rætt um hana í blöðum og á mannamótum. Og innan fárra missira gat mikill fjöldi bekkja, víðs vegar um land, bæði úr barna- og unglingaskólum, dvalið 8—12 daga í „lejr“-skóla. Hr. Pedersen sagði, að þótt árin hefðu liðið, hefði áhuginn fyrir þess- ari skólastefnu ekki dvínað í Dan- mörk.' Þvert á móti hefði hann vaxið að inun, svo að „lejr“-skólastefnan hefði þar aldrei staðið á sterkari grunni en í dag. — Og hann taldi, að í sambandi við þau örlög, sem margar nýjar stefnur í uppeldismálum hafa hlotið, væri hin skjóta utbreiðsla „lejr“-skólastefnunnar í Danmörk ein- stök undantekning. Það var mjög ánægjulegt og lær- dómsríkt að kynnast því, hve skipu- lagt þetta skólastarf er nú orðið í Danmörk. Við hlýddum ekki aðeins á ýtarlegar frásagnir um það, heldur sáum einnig ágætar kvikmyndir frá því ,og furðu mikla og góða nemenda- vinnu, sem unnin var í sambandi við hin ýmsu rannsóknarefni, sem tekin voru fyrir. Fjöldi skóla á nú þar sinn eigin „lejr“-skóla, en aðrir í samein- ingu, einhvers staðar úti á landsbyggð- inni, þar sem efri bekkirnir fá að dvelja minnst 10 daga, hin seinni ár. Og þótt starfssviðið sé að sjálfsögðu fyrst og fremst úti: rannsóknir í ríki náttúrunnar og á umhverfi öllu og at- vinnuháttum byggðarlagsins, er ætíð unnið daglega um stund inni. Stund- um getur hópurinn líka að sjálfsögðu þurft að halda til inni, vegna rigning- ar eða óveðurs. En allt er „skólastarf" þetta með öllu ólíkt Jjví, sem tíðkast í \ venjuleguny skólum, og e .t. v. er þar að finna meginástæðuna fyrir hinum miklu vinsældum þessarar stefnu. Þá er ýmiss konar íþróttum ætlað þarna mikið rúm.-----Hér var ekki ætlunin að lýsa ýtárlega daglegu starfi ,,lejr“- skólans danska, og hinum ýmsu rann- sóknar- og athugunarefnum hans. Það tæki of inikið rúm, og er nægilegt efni í aðra grein. En mér skyldist ótvírætt, að hér væri um kennsluaðferð að ræða, sem nemendum geðjaðist einstaklega vel að. í ,,lejr“-skólanum störfuðu þeir með meiri áhuga og gleði en kennarar hefðu þorað að gera sér vonir um. Þar \æru þeir ekki móttakendur, eins og oftast í hinum gömlu, hefð- bundnu lexíuskólum. Þar fengju þeir að starfa sjálfstætt, gera sínar eigin at- huganir og tilraunir, draga sínar eigin ályktanir. Þar væru þeir í sambandi við hið gróandi líf, sem jafnan er harla langt frá lexíukennslunni. — Þá voru hin auknu kynni, sem kennarar fengju af nemendum sínum í ,,lejr“- skólanum, talin mjög mikils virði. Norðmenn liafa farið miklu hægar í þessum efnum en Danir. Fyrsta til- raun með norskan „lejr“-skóla var þó gerð árið 1932, en féll fljótt niður aft- ur. Árið 1947 var svo þráðurinn tek- inn upp á ný, og frá þeim tíma hefur skólastefnu þessari sífellt vaxið fylgi, svo að Norðmenn eru nú farnir að tala ákveðið um hana sem fastan lið í skóla- starfi bæjanna. Áminnzt námskeið, sem er tilefni þessa greinarkorns, er ávöxtur þess umtals, og hið fyrsta sinnar tegundar í Noregi. Sagene skóli í Osló mun hafa mesta reynslu í þessu efni, miðað við Osló- skólana. Með frábærum samtökum,

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.