Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 13
HEIMILI OG SKÓLI
57
Félágsheimili Kennarasambcmds Noregs á Tranberg. (Ljósm.
Sigurður Gunnarsson).
dugnaði og fjárfórnum hafa foreldrar
og kennarar keypt jörð á yndisfögrum
stað, alllangt frá Osló, og komið þar
upp aðstöðu til dvalar fyrir t\’o bekki
samtímis, ef ástæða þætti til Hér er um
feykilegt át,ak að ræða, og aðeins fært
þeim, sem einhuga stefna að settu
marki. Samtök foreldra og kennara við
þennan skóla og ýmsa aðra í Osló, eru
meiri og blessunarríkari en ég hef áð-
ur kynnzt, og því til sannrar fyrir-
myndar.
Ég kynntist töluvert tveim kennur-
um frá Sagene skóla, sem höfðu verið
með bekki sína í „lejr“-skólanum, og
átti við þá langar viðræður. Voru þeir
sammála um, að hér væri um nrjög
mikilsverða skólastefnu að ræða og
þroskavænlega fyrir börnin. Bar þeim
þar í öllu saman við hr. Pedersen. —
Annar þessara kennara hafði sarnið svo
um við sveitaheimilin í grenndinni, að
börnin fengju að gista þar eina nótt,
eitt til tvö á hverjum bæ, og áttu þá
jafnframt að kynna sér eftir beztu getu,
störfin á heimilinu. Þetta hafði gefið
hina ágætustu raun, og verið börnun-
um til einstakrar ánægju og uppbygg-
ingar. I þakklætisskyni höfðu svo Osló-
börnin boðið sveitabörnunum til
dvalar í borginni, þegar þeim hentaði
bezt. — Enginn efi er á, að slík gagn-
kvæm kynni ungmenna frá sveit og
bæ, eru harla mikilvæg, og munu
margir skólanemendur hér hugsa sér
slík kynni sem ákveðinn lið í starfi
hins norska „lejr“-skóla. Geta má, til
að gefa hugmynd um samstarfsvilja
foreldranna, að nokkrar mæður hafa
jafnan, af frjálsum og fúsum vilja,
verið með hverjum bekk, er hann hef-
ur dvalið í ,,lejr“-skólanum, og annast
matseld og þjónustu. Hefur það að
sjálfsögðu verið ómetanlegt.
Þótt ýmsir skólar i Osló og í fleiri
bæjum í Noregi, hafi hug á að koma
sér upp eigin „lejr“skóla, voru þátt-
takendur námskeiðsins sammála um,
að sú leið væri fæstum fær, vegna
kostnaðar. Með Grettistökum, eins og
hjá Sagane skóla, væri almennt ekki
hægt að reikna með. En til þess að
hægt væri að framkvæma skólastefnu
þessa fljótt, og á tiltölulega ódýran