Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 16

Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 16
60 HEIMILI OG SKÓLI er að ræða, er takmarkið alltaf það, að börnin geti lesið í orðmyndum; hvaða leiðir séu heppilegastar til þess að ná því marki, greinir menn tals- vert á um, sumir vilja byrja á orð- myndum og jafnvel ekki sinna eind- um, þ. e. stöfum eða hljóðum, að neinu ráði, aðrir vilja byrja á stöfum og enda við orðmyndir, þeir þriðjti leggja mikla áherzlu á einstök hljóð og samruna þeirra í hljómmyndir. Eins og ég gat um áður, hef ég ekki í hyggju að gera lestraraðferðir að sér stöku umtalsefni, en benda má á, að hægt er að kenna lestur þannig, að ein aðferðin er gerð að hjálparaðferð -annarrar. Hugsum okkur t. d. ef við byrjum á orðmynd, kennum barninu að segja orðið, síðan stöfum við það og skiptum því í atkvæði, við l>yrj- um þá á heildaaðferð, en tökum svo greiningaaðferð í þjónustu okkar þannig, að við göngurn úr skugga um, hvernig hinir einstöku hlutar orðsins eru. Þetta verðum við að gera fyrr eða síðar, ef við eigum að gera okkur von- ir um að geta kennt börnunum rétt- ritun. Hugsanlegt er einnig að nota hljóðaaðferðina sem hjálparaðferð við lestrarkennsluna, einkum ef við vit- um, að börnin, sem við kennum, hafa gott sjónminni og orðin, sem við æf- úm með aðstoð hl jóðaaðferðar, eru hljóðrétt. Hljóðaaðferðin er miklu heppilegri hjálparaðferð við orð eins og: svo, úr því, livað og hverjir, lield- ur en ganga, leiti, lögum, nefnd og vigta. Gamla stöfunaraðferðin uppfyllir að minni hyggju fleiri kröfur til heppilegrar lestraraðferðar en margar aðrar, t. d. má benda á í sambandi hana, að börnin greina fyrr bókstafi en hljóð, þegar um lestrarnám er að ræða. Foreldrar munu flestir kannast við stöfunaraðferðina og geta þess vegna aðstoðað börn sín við lestrar- námið. Stöfunaraðferðin er að miklu gagni hvað réttritun snertir, og loks má geta þess, að hún er sambland úr hljóða- og orðmyndaaðferð, þannig að tvær meginstefnur í lestrarkennslu sameinast í raun og veru í henni. Sé um lestrarörðugleika að ræða, verður, ef vel á að fara. að beita fleiri hjálparaðferðum, og mun ég benda á nokkur þeina síðar. Rétt er að geta þess nú þegar, að ef maður fær í bekk- inn til sín barn, sem er mjög illa á vegi statt í lestri, er rétt að athuga, hvaða lestraraðferð hefur verið beitt til þess að kenna því, þar eð sutnar lestraraðferðir eiga alls ekki við ákveðin börn, en því mun ég gera nánari skil síðar. Ég vil mjög eindregið benda á, að með því, sem ég hef sagt um lestrar- nám, hef ég engan veginn leitt ykkur í allan sannleika; það, sem hér hefur verið sagt, er fremur til þess fallið að vekja menn til umhugsunar um eina af helztu námsgreinum skólans. Við skulum nú snúa okkur að lestr- arörðugleikum og athuga, í hverju þeir geta verið fólgnir. Til þess að vera viss um, að börnin séu ekki léleg í lestri sökum greindar- skorts, verðum við að prófa þau með vitprófum og lestrarprófum og beta svo saman greindar- og lestrar-vísitöl- una. Ef greindar-vísitalan er mun hærri en lestrar-vísitalan, er strax ástæða til at athuga nánar, hverju það muni sæta. Monroe nefnir í bók sinni

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.