Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 26

Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 26
/ 70 \ ir. Það er búið til hveitilím í skólan- um og stafirnir og myndirnar eru límd á pappír eða í bók. Allt er þetta gert til að fá barnið til að starfa, koma því á lagið, svo að það geti einnig unnið þetta heima hjá sér. Börnum þykir gaman að geta unnið það sama heima, sem þau gerðu í skólanum, og þvi skyldi þá ekki vera lagt kapp á að búa þau undir slíkt? Með því móti fá for- eldrarnir einnig að fylgjast með starfi skólans á raunverulegan hátt — og án allra skýringa. Það getur vel verið ,að eitthvað af pappír og öðrum úrgangi slæðist á gólfið, en látið barnið sjálft hreinsa það á eftir, það gerir það fúslega, að- eins ef það vær að vinna sjálft og skapa eitthvað. Með því að klippa út, teikna bókstafi og líma þá inn, koma fram í huga barnsins heil orð, sem það þekkir og man. En munið eftir því, kæra móðir og kæri faðir, að svara barninu, ef það spyr um eitthvað. Spurningar barnsins bera vott um, að það vill fá að vita eitt og annað. Það getur verið dálítið erfitt fyrir kennara að svara öll- um spurningum, sem til hans berast úr fjölmennum bekk, að minnsta kosti sama daginn, en ef pabbi og marnma geta svarað, þá er það engu lakara. Rekið ekki barnið frá ykkur, jafnvel þótt þið eigið annríkt, með því hrindið þið frá ykkur því bezta og elskulegasta í fari barnsins, sem sé því trausti, sem barnið ber til ykkar og þeirri barns- legu trú, að pabbi og mamma geti ráð- ið fram úr öllum vanda. Þið viljið kannske líta svo á, að það sé hlutverk skólans að svara þessum spurningum barnsins. Já, það er rétt, og hann gerir það, en flestum litlu HEIMILI OG SKÓLI' börnunum er Ijúfara að spyrja pabba og mömmu en ókunnugan kennara. Það getur líka tekið nokkurn tíma, að sá trúnaður skapist milli kennarans og barnsins, að það komi til hans með spurningar sínar óhikað. En til að koma þeim trúnaði af stað, er gott að byrja með því að kennarinn láti barnið alltaf sýna sér það, er það hefur unnið sjálft heima. Hvort sem það hefur fundið það sjálft upp eða foreldrarnir. Slíkir smáhlutir, sem barnið hefur búið til, geta gefið kenn- aranum margar góðar hugmyndir. Hjólið snýzt nú án afláts. Nú vita foreldrarnir, hvað er að gerast bak við múra skólans, þeir hafa meira að segja sjálfir lagt þar ofurlítið til málanna. Einu vil ég þó beina til allra foreldra: Þið skuluð ekki lagfæra eða leiðrétta skrift barnsins. Það er kannske verið að reyna nýtt skriftarform, og ef ykkur sýnast stafirnir eitthvað einkennileg- ir, þá talið við kennarann áður en þið grípið inn í. Yfirleitt verður að sýna mikla þolin- mæði. Ætlist ekki til of mikils af barni yðar. Ætlið því ekki að læra að lesa og reikna í skjótri svipan, jafnvel þótt ná- grannabarnið sé komið lengra. Annars hættir mörgum foreldrum til að krefj- ast mikils af fyrsta barninu. Ég veit ekki hvers vegna, en svona er það oft. Hinar nýrri aðferðir í byrjunar- kennslu taka tnikið tillit til þroska hvers einstaks barns, en heimta alls ekki, að allir í bekknum geti það sama. En ef það er eitthvað, sem þið eruð í vafa um, skuluð þið spyrja kennarann. Ykkar eigin börn spyrja ykkur. Við fulltíða menn fáum einnig forvitni

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.