Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 30

Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 30
74 HEIMILI OG SKÓLI Uppeldismálaþingið 1953. Dagana 12.—15. júní s.l. var háð hið venjulega uppeldismálaþing í Reykja- vík, en það er lialdið annað hvort ár. Þingið var sett í Melaskólanum af formanni Kennarasambandsins, Arn- grími Kristjánssyni, að viðstöddum forseta Islands, kennslumálaráðherra, sendiherra Dana, settum fræðslumála- stjóra o. fl. gestum. Menntamálaráð- herra flutti ávarp. Þá fluttu framsögu- erindi þeir Einar Ólafur Sveinsson prófessor og dr. Broddi Jóhannesson, en síðan fóru fram umræður um aðal- mál jjingsins: íslenzkt þjóðerni og skólarnir. Menntamálaráðherra hafði einn daginn boð inni fyrir þinggesti og talaði þar. Hér fara á eftir samþykktir þings- ins: Uppeldismálaþingið er einhuga um þá skoðun, að því aðeins varðveiti ís- lendingar þjóðerni sitt og sjálfstæði, að þeir leggi af alhug rækt við menn- ingu sína. Með þeirn hætti einum öðl- ast þjóðin styrk til þess að standa gegn þeim áhrifum erlendum, sem ógna ís- lenzkri menningu: Oviinduðum þýð- ingum, lélegum og siðspillandi kvik- myndum, ómerkilegu útvarpsefni frá erlendum útvarpsstöðvum bæði í landinu sjálfu og utan þess. Sú ógn- un, er í slíkum áhrifum felst, er orðin stórum hættulegri vegna sam- býlis við erlent herlið í landinu. Þing- ið leggur því áherzlu á, að stjórnarvöld landsins og öll þjóðleg menningarsam- tök leggist á eitt um það, að sporna af fremsta megni við umgengni íslenzkr- ar æsku við hið erlenda herlið. Hins vegar er þjóðinni nauðsynlegt að njóta hollra menningaráhrifa frá öðrum þjóðum, hverjar sem þær eru, enda hefur íslenzk menning frjóvgast við slík áhrif á umliðnum öldum. Þingið ber fullt traust til skóla landsins, að þeir láti einskis ófreistað til að vekja ást og glæða skilning ís- lenzks æskulýðs á lífsbaráttu þjóðar- innar, sögu hennar, tungu, bókmennt- um, náttúru landsins og öllu því, sem land og þjóð á bezt í fari sínu. Þingið vill í þessu sambandi benda á nokkur ráð ,sem komið gætu að liði í starfi skólanna til eflingar íslenzkri þjóðrækni. Má þar nefna aukningu ís- lenzkra kennslumynda (kvikmynda, skuggamynda, vinnubókamynda, vegg- mynda), bætta myndskreytingu kennslubóka, söfnun íslenzkra nátt- úrugripa og plantna, heimsóknir í söfn (þjóðminjasöfn, byggðasöfn, listasöfn, náttúrugripasöfn). Þyrfti að stofna til skipulegra leiðbeininga í því sam- bandi. Heimsóknir nemenda á vinnu- staði mundu koma þeim í nánari tengsl við þjóðlífið. Heimsóknir ís- lenzkra rithöfunda, menntamanna og listamanna væru og tvímælalaust til að örva áhuga nemenda á íslenzkum þjóðarmenntum. Ennfremur telur þingið athyglisverða þá hugmynd að helga íslenzkri tungu, sögu og bók- menntum sérstaka skóladaga eingöngu og er þyí meðmælt að skólum verði veitt heimild til þess. Um kennslu í íslenzku máli, bók-

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.