Heimili og skóli - 01.08.1953, Síða 31

Heimili og skóli - 01.08.1953, Síða 31
HEIMILI OG SKÓLI 75 menntum og sögu vill þingið taka fram: a) Að lögð verði miklu meiri áherzla en nú tíðkast á mælt mál í daglegu skólastarfi, skýran framburð, glögga frásögn og áheyrilega framsögu. Mál- fræðikennslan miðist einkum við rétta, hagnýta meðferð málsins. Nú- verandi tilhögun, að próf séu nær ein- göngu skrifleg, þarf að sjálfsögðu að breyta til samræmis við ábendingar þessar. b) Aukin verði kennsla í íslenzkum bókmenntum í skólum landsins, nem- endurnir látnir læra sem mest af ljóð- um, áherzla lögð á merkingu orða og orðtaka og reynt að glæða skyn þeirra á anda málsins. c) Að lögð verði aukin áherzla á kennslu í íslandssögu, einkum eftir 1874. Uppeldismálaþingið samþykkir að leita samvinnu við prestastétt landsins um aðferðir og leiðir til verndar ís- lenzkum æskulýð og í sambandi við þjóðernisleg og siðferðisleg vandamál. Þá voru samþykktar eftirfarandi til- lögur: U. Uppeldismálaþingið telur höfuð- nauðsyn, að hið allra fyrsta verði ráðn- ar bætur á þeirri óviðunandi aðbúð, sem Kennaraskólinn hefur lengi orðið að sætta sig við. Skorar þingið ein- dregið á hæstvirtan menntamálaráð- herra, að hann hlutist til um, að hafin verði bygging nýs kennaraskóla þegar á þessu ári. II. Vegna viðtals við Gunnar Finnboga- son, cand. mag., skólastjóra á Patreks- firði, sem birt er í Morgunblaðinu sunnudaginn 14. júní, vill uppeldis- málaþingið lýsa því yfir, að það telur eftirfarandi ummæli hans um ung- linga í skólum landsins gífuryrtan og ómaklegan sleggjudóm: „Skólabragur er í mörgum atriðum losaralegur. Ábyrgðarkennd barna og unglinga er þorrin. Nemendur eru óhlýðnir, kunna ekki að skammast sín, meta einskis, hvort þeir standa sig bet- ur eða verr. Kæruleysið er afskaplegt og námsleiði mikill." Þótt höl’undur þessara tilfærðu um- mæla hafi ef til vill kynni af slíku mis- ferli í einstökum skóla, sínum eigin eða öðrum, nær engri átt að gera það að átyllu fyrir almennan áfellisdóm af þessu tagi, og sízt vænlegt til góðra áhrifa. III. Samþykkt var tillaga um endur- heimt íslenzkra handrita úr dönskum söfnum, önnur um að koma söngnámi kennara í fullkomnara horf, og enn- fremur beindi þingið þeirri áskorun til menntamálaráðherra, að hann beiti sér fyrir því á Alþingi, að 114% af frantlagi ríkisins til fræðslumála verði framvegis veitt til vísindalegra rann- sókna á uppeldi og kennslutækni. í skólanum. Kennslukonan er að segja bömunum frá skordýri, sem verpir milljónum eggja. Dóri litli hugsar sig um litla stund og spyr síðan: „Hljóða þau svo við hvert egg, sem þau eiga?“ Ofugstreymi. Faðirinn: „Hvernig er það, lærir þú nokk- uð í skólanum?“ Sonurinn: „Já, alltof mikið, svo að ég get ekki munað það allt. Þegar ég man eitthvað, kenna þeir mér eitthvað annað, svo að ég gleymi því, sem ég mundi.“

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.