Heimili og skóli - 01.04.1955, Blaðsíða 14

Heimili og skóli - 01.04.1955, Blaðsíða 14
34 HEIMILI OG SKÓLI lífsins, segja þeir. Þeir, sem liafa alla sína fræðslu úr bókum, verða oft svo sorglega úrræðalausir, þegar út í lífið kemur, sagði þessi ágæti kennari, og er þá auðvitað fyrst og fremst átt við borgabörnin, sem ekki komast í neina snertingu við atvinnuvegi þjóðarinn- ar. Eg sá þó á skýrslu þessa kennara, að hann setur börnunum fyrir að lesa eina blaðsíðu heima að jafnaði. í skóla þessum er ekki bekkja- kennsla, lieldur skipta kennarar með sér verkum eftir námsgreinum. Og yf- irleitt hafa börnin ekkert heimastarf nema að búa sig undir fyrirlestra og annað rannsóknarstarf í skólanum. Þótt reikningur hafi sína sérstöku tíma á stundaskránni, grípur Iiann þó ákaflega víða inn í annað nám. með alls konar mælingum og útreikning- um. í flestum kennslustofum er mik- ið af alls konar handbókum, sem eru þó yfirleitt ekki notaðar til skólanáms, og má þar til nefna almanakið, árbæk- ur pósts og síma, skýrslur frá atvinnu- vegunum, hagskýrslur o. fl. Þá er mik- ið af alls konar áhöldum, svo og al. mennum handbókum og námsbókum. Með ýmsu móti er reynt að vekja áhuga barnanna og forvitni þeirra á fyrirbærum daglegs lífs. Ein aðferðin er þessi: Kennarinn lætur bvert barn í bekknum bera upp 10—15 spurningar um einhver efni, sent það langar til að fræðast um. Á þennan hátt geta komið 400—500 spurningar úr bekknum, ým- islegs efnis. Og kennir þar margra grasa. Svo vinna börnin og kennarinn að því sameiginlega að fá svör við þessum spurningum. Þannig leggja bcirnin sjálf til umræðuefnið. Allt þetta léttir undir með hinu sjálfstæða starfi. I einum fyrirlestrartíma kom fram drengur, sem hafði mikinn áhuga á stjörnunum. Hann hafði leitað í bók- um að fræðslu um þetta áhugamál sitt, farið í bókasöfn og fengið þar bækur um stjörnufræði o. s. frv. og unnið að þessnm rannsóknum utan skólans að mestu, og svo sagði liann frá þessu í skólanum einn góðan veðurdag, og ræða hans vakti óskipta athygli. Einn kennarinn sagði við mig: Venjuleg bekkja- og hópkennsla hef ur þá galla, að stór hópur nemendanna í hverjum bekk nýtur sín ekki. Dug- legu börnin ganga alltaf fram fyrir skjöldu. Þau eru fljótust að svara. Hin, sem hægfara eru, enda þótt þau séu ekki illa gefin, hverfa í skuggann. Þau gefast upp í samkeppninni og falla í eitthvert vanamók. Þau eru troðin undir í bekknum. Það er mikil áherzla lögð á kurteisi í þessum skóla. Einn kennarinn sagði: Mér gengur bezt að fá drengina til að taka ofan húfuna fyrir mér nteð því að taka ofan fyrir þeim. Fordæmið knýr til eftirbreytni hér sem víðar. Hér læt ég staðar numið að sinni, þótt við eigurn eftir að koma inn í margar stofur í Emdrupborg enn. Vera má, að við lítum þar inn síðar. Ég geri ráð fyrir, að ekki fáist já- kvæður árangur út tir öllum þeim til- raunum, sem þarna er verið að gera, en það, sem mér fannst einkenna þennan' skóla framar flestum öðrum skólum, sem ég kynntist, var leit — leit að einhverju betra og fullkomnara, og þegar sú leit er einlæg, fer ekki hjá því

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.