Heimili og skóli - 01.04.1955, Blaðsíða 18
38
HEIMILI OG SKÓLl
Barnaverndafélög í Danmörk.
Margs konar mannúðarstarfsemi ein-
kennir þessa rótlausu breytingatíma,
sem nú ganga víir heiminn. Mannúð
er eitt af beztu einkennum þessarar
aldar. Meira er gert að því en nokkru
sinni áður að rétta þeim hjálparhönd,
er í skugganum sitja.
Barnaverndarstarfsemi er aðallega
með tvennu móti. Annars vesrar eru
o
hinar lögskipuðu nefndir í hverju
landi, og hins vegar frjáls félagasam-
tök. Eg hef liaft með höndum árs-
skýrslur og greinargerðir um starfsemi
landssambandsins danska ,,Red barn-
et“ síðastliðin tvö ár. Og ég verð að
segja, að ég varð undrandi yfir, hve
hún er víðtæk og þróttmikil.
Þessi félagsskapur er aðein sjö ára
gamall í Danmörk, og er einnig starf-
andi á öllum hinum Norðurlöndun-
um, nema Tslandi. F.n hann var upp-
Jiaflega stofnaður í F.nglandi eftir fyrri
heimsstyrjöldina, árið 1919. Stofnandi
hans er ensk kona, Eglantyne Jel)b, og
var hún kvekari. Félagsskapurinn
spratt upp úr hjálparstarfsemi fyrir
börn í styrjaldarlokin.
„Red barnet“ var stofnað í Dan-
mörk 14. marz 1945, tveim mánuðum
fyrir lok síðari styrjaldarinnar. Það
voru sambönd danskra kvenna, sem
gengust fyrir stofnun þessa félagsskap-
ar. Og sannast það hér, sem kunnugt
er, að konunum er það eiginlegt að
græða þau sár, sem karlmennirnir
valda. Er danska drottningin verndari
félagsins, og heitir eitt af barnaheimil-
um þess eftir henni.
Frá styrjaldarlokum til 1950 hefur
starfsemin í Danmörk mest beinst að
því að bjarga börnum í stríðslöndun-
um frá hungri, veikindum, kulda og
heimilisleysis. — Siðan 1950 hefur
dregið úr starfseminni erlendis, en
verið aukin fyrir dönsk börn. Þó hefur
sambandið enn barnaheimili í Þýzka-
landi fyrir flóttafólk.Á árunum 1945—
50 hafa verið 21.000 flóttabörn í sum-
ardvöl í Danmörk á vegum þessa fé-
lagsskapar. Og í fyrrasumar tók þessi
félagsskapur á móti 47 flóttabörnum
frá Austurríki, og voru þau flest föður-
laus. Þau voru í Danmörk í 3 mánuði.
Þá hefur sambandið barnaheimili í
Grænlandi. Einnig hafa grænlenzk
börn verið í ársdvöl hjá félaginu á
dönsku barnaheimili.
Þá hefur lela<>ið allmör<> heimili
o r>
fyrir börn í sumarleyfum. Á sumum
þessum heimilum eru um 300 börn
samtals yfir sumarleyfið í smærri hóp-
um. Þar á meðal voru 20 grænlenzk,
foreldralaus börn, um 6 ára gömul, og
voru þau á dönsku barnaheimili í eitt
ár. En voru svo flutt í átthaga sína aft-
ur og komið í fóstur. Þar að auki rek-
ur félagið barnaheimili í Nanerntalik
í Grænlandi. Þetta ár hafði félagið
hjálpað að meira eða minna levti um
7000 flóttabörnum í Þýzkalandi.
Árið 1950 notaði félagið li/, millj.
danskra króna til starfsemi sinnar, og
er það mikið fé. Helminginn af þess-
um fjármunum fær félagið frá dansk-
frönsku happdrætti. Margt fólk vinn-
ur á skrifstofum félagsins. Til dæmis