Heimili og skóli - 01.04.1955, Blaðsíða 28

Heimili og skóli - 01.04.1955, Blaðsíða 28
48 HEIMILI OG SKÓLI SEXTUGUIÍ: Hallgrímur Sigfússon KENNARI. Þann 23. apríl s.l. varð Hallgrímur Sigfússon, kennari í Öxnadal, sextug- ur. Hallgrímur er Fnjóskdælingur að ætt, fæddur að Sörlastöðum þar í sveit og ólst þar upp. Hann rak búskap framan af ævinni, lengst að Grjótár- gerði, en stundaði jafnframt barna- kennslu á vetrum. Hallgrímur er kvæntur Rósu Stefánsdóttur frá Þórð- arstöðum í Fnjóskadal. Arið 1949 fluttust þau hjón til Akureyrar og liafa búið þar síðan. Hallgrímur hefur hin síðari ár verið kennari í Öxnadal, og farnast það vel. Hallgrímur er lítt skólagenginn maður. Mun hann hafa verið 3 mán- uði í unglingaskóla hjá Guðmundi Ól- afssyni á Sörlastöðum. Það er allt hans skólanám. Hallgrímur er hið mesta ljúfmenni, síglaður og hrosandi, það eru góðir kennarakostir. Hann er ágætur full- trúi hinna sjálfmenntuðu kennara, sem með brennandi áhuga hafa unnið sig upp og náð góðurn árangri í starfi sínu. Ég trúi ekki öðru en Hallgrímur eigi hlýhug allra nemenda sinna. H. J. M. ---o---- Presturinn var að spyrja börnin og sagði meðal annars: ,,í kirkjunni næsta sunnudag mun ég prédika um syndina.“ „Með henni eða móti?“ spurði eitt bai-nið.“ HEIMILI OG SKÓLI TÍMARIT UM UPPELDISMÁL Útgefandi: Kennarafélag Eyjafjarðar. Ritið kemur út í 6 heftum á ári, minnst 24 síður hvert hefti, og kostar árgang- urinn kr. 25.00, er greiðist fyrir 1. júní. Útgáfustjórn: Hannes J. Magnússon, skólastjóri. Eiríkur Sigurðsson, yfirkennari. Páll Gunnarssoii, kennari. Afgreiðslu- og innheimtumaður: Árni Björnsson, kennari, Þórunn- arstræti 103, Akureyri. Ritstjóri: Hannes J. Magnússon, skólastjóri. Páls Briems götu 20. Akureyri. Sími 1174. Prentverk Odds Björnssonar h.f. Námskeið fyrir handavinnukennara Fyrirhugað er að halda viku til 10 daga námsskeið í liaust fyrir handa- vinnukennara stúlkna í harnaskólum og skólum gagnfræðastigsins. Náms- skeiðið verður í Reykjavík og hefst um miðjan septembermánuð. Jafn- framt námsskeiðinu verður rætt um handavinnukennslu almennt í áður- greindum skólaflokkum. Arnheiður Jónsdóttir, handavinnu- kennari, veitir nánari upplýsingar um námsskeiðið. Námsskeið þetta verður nánar aug- lýst síðar.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.