Heimili og skóli - 01.04.1955, Blaðsíða 23

Heimili og skóli - 01.04.1955, Blaðsíða 23
HEIMILI OG SKÓLI 43 Uppeldi og kennsla. (Eftir cand. psyk. RASMUS JAKOBSEN.) Efni þetta er mjög víðtækt, og verð- ur því aðeins drepið lauslega á nokkur atriði. Af öllum lifandi verum er maður- inn, allt frá fæðingu, meir hjálparvana en nokkur önnur vera jarðarinnar, en hann hefur aftur á móti hlotið þann hæfileika framar öllum öðrum að geta mótast og þroskast. Það má ala mann- inn upp og kenna honum. Þetta er í senn blessun hans og bölvun. Það hef- ur því orðið spurning allra uppeldis- fræðinga, og raunar allra uppalenda, hvort ráði meira í fari mannsins, erfð- irnar eða uppeldið. Skoðanirnar á þessu sveiflast svo til og frá. Öðrurn megin er Watson í broddi fylkingar, sem heldur því fram að erfðirnar skipti þarna sáralitlu máli. Uppeldið ráði mestu. Hins vegar koma svo aðrir sálarfræðingar, er leggja höfuðáherzl- una á erfðirnar, og telja að þær ráði mestu um hamingju, óhamingju, þroska og vanþroska bamanna. Ég held, að það rétta í þessu máli sé það, að með hinum erfðu eiginleikum gef- ist okkur vissir möguleikar, og með þeim séu okkur einnig sett viss tak- mörk. Um uppeldið, umhverfið getur maður aftur sagt eins og orðtakið seg- ir: Hinn sami eldur, sem bræðir smjör- ið, harðsýður einnig eggið. Uppeldi getur farið fram á tvennan hátt. Markvisst og í ákveðnum til- gangi, og einnig ómarkvisst, tilviljana- kennt. Uppeldisfræðingunum verður að skiljast, að í hinu ómarkvissa upp- eldi felast rneiri hættur en almennt er ætlað. Þeir verða því að trúa því að uppeldið og umhverfið hafi vissu hlutverki að gegna, og taka tillit til þess. Þegar litið er á afstöðu uppalandans til barnsins á liðnum tímum, hafa komið fram mörg og ólík sjónarmið. F.itt af þeirn harðvítugustu er þetta: Barnið er vont þegar það fæðist. Tak- mark uppalandans r erður því að mið- ast við það að uppræta þetta illa í barn- inu. En látum okkur taka þessari full- yrðingu og öðrum svipuðum kenning- um með hinni mestu varúð. Ef við ját- um þetta sjónarmið, erum við að loka okkur inni. Ef uppeldið mistekst, get- urn við þvegið liendur okkar og sagt: Þetta gat ekki öðruvísi farið. Barnið var svona frá fæðingu. Rousseau lítur öðruvísi á þetta mál. Hann heldur því fram, að barnið fæð- ist gott og saklaust.Mistakist uppeldið, má nota hin sömu rök og áður. Mis- tökin liggja hjá ókkur í sjálfu uppeld- inu. Eftir frekari, vísindalegar rann- sóknir hafa menn komizt að þeiiæi nið- urstöðu, að allir menn fæðast með viss- um hæfileikum, hvötum og þörfum, svo sem sjálfsmati, sjálfsbjargarvið- leitni, reiði, kærleiksþörf, kynhvöt o. s. frv. Við verðum að viðurkenna, að þessar þarfir og hvatir finnum við hjá

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.