Heimili og skóli - 01.04.1955, Blaðsíða 15

Heimili og skóli - 01.04.1955, Blaðsíða 15
HEIMILI OG SKÓLI 35 Einar G. Jónasson sjötugur: Einar G. Jónasson. hreppstjóri á Laugalandi á Þelamörk, \arð sjötugur 23. apríl síðastliðinn. Þegar ég man Einar fyrst, var hann ætíð nefndur Einar kennari, síðar vm- ist kennari eða oddviti, og nú síðast hreppstjóri. Við þetta má svo bæta fleiru ,svo sem sýslunefndarmaður og síðast, en ekki sízt, bóndi. Þetta segir þegar nokkuð um mann- inn. Þó gætu ókunnugir látið sér til hugar koma, að hann væri einungis einn þeirra manna, sem alls staðar trana sér fram. Kunnugir vita hins vegar, að Einar cr manna hógværastur, en svo mikill þegnskaparmaður, að hann skorast hvorki undan vanda né ábyrgð, þegar þörf kallar. Og Jrar við bætist, að hann hefur alltaf átt traust almennings og vinsældir. En það hvort tveggja er auðvitað afleiðing gáfna hans og mannkosta. Það yrði langt mál að rekja starfs- að innan um hismið finnist meira o<>' o minna af hveitikornum. Það var hressandi andrúmsloft í þessum skóla. Mikil vinnugleði, bæði hjá kennurum og nemendum. Ég varð ekki var við neitt lamandi vanamók, sem stundum verður vart í skólum. Eg hafði lært ýmislegt þennan dag og hugsaði gott til næsta dags. En frá hon- um verður ekki sagt í þetta skipti. H. J. M. feril Einars G. Jónassonar til nokkurr- ar hlítar, og skal Jrað ekki gert. En mig langar til að minnast hans sem kenn- ara hér í þessu riti. Að loknu námi í bændaskólanum á Hólum 1909 — en það var öll hans skólaganga — gerðist hann barnakenn- ari í hluta Glæsibæjarhrepps, Þela- mörkinni. Síðar varð hann aðalkenn- ari Iireppsins og kenndi þar um 30 ára skeið. Þegar Einar byrjaði að kenna, voru eldri systkin mín í skóla. Áhrifin, sem þau urðu fyrir þar og fluttu heim með sér, voru með þeim hætti, að ég fór ])egar að hlakka til þess, er röðin kæmi að mér. Þá var skólaskylda bundin 10 ára aldri. Ég varð því harla glaður, er móðir mín sagði mér, þegar ég var 9 ára, að hún hefði beðið Einar að taka mig í skólann einn mánuð. Feiminn en fagnandi kom ég í skólann í fylgd eldra bróður míns. Feimnin hvarf fljótt, en fögnuðurinn hélzt öll árin, sem ég var í barnaskólanum. Eitt var þó ekki fagnaðarefni: Það, að skólinn liætti. Þá var aðeins kennt 8 vikur á vetri og fannst mér það alltof stuttur tími. Árið, sem ég varð 14 ára. þótti eðli- legt og jáfnvel sjálfsagt, að ég tæki fullnaðarpróf. En mig langaði mjög til þess að vera lengur í skólanum, og þar sem ég átti ekki að fermast fyrr en ári síðar. var ])að látið eftir mér. Það

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.