Heimili og skóli - 01.02.1956, Side 7
Heimili og skóli
TÍMARIT UM UPPELDISMÁL
15. árgangur Janúar—Febrúar 1956 1. hefti
- Mikilvægasta Iilutverkiá. -
Nýtt ár er enn einu sinni runnið
upp með nýjum vonum og nýjum fyr-
irætlunum. Einhver ætlar kannski að
byggja sér nýtt liús. Það er ekki
ómerkilegur viðburður. Annar ætlar
að kaupa sér ný húsgögn í stofuna, ef
vel gengur með atvinnuna. Sá þriðji
lrefur hugsað sér að stofna fyrirtæki,
sem líkur eru til að gefi góðan arð.
Við þetta eru margar vonir bundnar.
Sá fjórði hefur ákveðið að sækja um
nýja stcjðu, sem hann veit að muni
losna. Hún er vel launuð. Þetta getur
markað tímamót í ævi hans. Sá fjórði
ætlar að skrifa bók, sem hann vonar
að muni færa lionum bæði frægð og
fé. Sá fimmti ætlar að bjóða sig fram
til þings, ef kosningar verða í sumar.
Það verður einn af stærstu viðburðun-
um í lífi hans. Hann býst við að verða
mikill áhril'arnaður á þingi.
fá, heimurinn er alveg barmafullur
af fyrirætlunum, stórum og smáum,
draumum um frægð og frama, vonum
um velsæld, auð og mannforráð. Síð-
astliðið ár var mörgum gott, og það
gerir menn bjartsýna. Það er bezt að
gera út fleiri og stærri báta næsta ár.
Og allir eru önnum kafnir.
En ef svo ólíklega skyldi fara, að við
gæfum okkur tíma til að nema staðar
andartak og spyrja okkur sjálfa: Hvert
af hlutverkum mínum, störfum mín-
um og embættum (því að sumir hafa
mörg embætti) er nú mikilvægast? Það
er hætt við, að þarna yrðu nokkur
áhöld um. En nú skal ég segja þér, les-
andi rninn, hvert er mikilvægasta hlut-
verk þitt, ekki aðeins næsta ár, heldur
mikilvægasta hlutverk ævi þinnar. Ef
þú átt börn, þá er það uppeldi barns-
ins þíns eða barnanna þinna.
Þar er þér trúað fyrir mestu. Ef þú
rækir ekki það starf vel, gerir það eng-
inn. Þar getur enginn komið í staðinn
fyrir þig. Er þér þetta ljóst? Metur þú
þetta hlutverk um fram öll önnur hlut-
verk þín? Sýnir þú í þessu hlutverki
hina sömu ábyrgðartilfinningu og í
þeim hlutverkum, sem þú vilt leysa
bezt af hendi? Lætur þú þetta hlutverk
sitja í fyrirrúmi fyrir öðrum, þegar frá
eru talin þau borgaralegu skyldustörf,
sem þú verður að sinna?
Þetta eru allt miklar samvizkuspurn-
ingar, en við komumst ekki hjá því að
svara þeim, og því fyrr því betra. Þetta
er mál, sem ungu hjónin eiga að ræða,
er þau hafa eignast sitt fyrsta bam.
Annars svarar lífið þeim seinna, og þá
kannski stundum á óþægilegan hátt.
En svarið kemur þá oft of seint.