Heimili og skóli - 01.02.1956, Side 16
10
HEIMILI OG SKÓLI
Má þar til nefna eldspýtnakassa,
pappa, hettur af gosdrykkjaflöskum
o. m. fl., sem nota má. Ef svo ber við,
að nota þarf éitthvert efni, sem sjald-
gæft er, fer heldur ekki hjá því, að
eitthvert bamið viti, hvar það er að
fá. En þrátt fyrir þetta, er efnisvanda-
málið ekki alltaf auðleyst. Hvað hent-
ar t. d. bezt í þetta og hitt? Auðvitað
verða börnin að þreifa sig áfram. En
barna hefur komið að s;óðu liði lítið
rit,er einn af kennurunum hefur tekið
saman, þar sem hann gefhr yfirlit um
helztu efni, sem nota má til frjálsrar
vinnu í skólum, sem allir eiga aðgang
að. (I þessu sambandi skal íslenzkum
börnum bent á tómstundaþátt Jóns
Pálssonar í útvarpinu). En það, sem
okkur vantar tilfinnanlega, er safn af
vel gerðum gripum og líkönum, gerð
af nemendum, sem alltaf gætu orðið
uppsprettulind nýrra hugmynda þeim
börnum, er síðar koma.
SKIPULAGNING
Það þarf ekki mikið átak til þess að
koma heilum bekk af stað með pappír,
liti og pensla. Þegar fyrstu leiðbein-
ingum er lokið, fellur venjulega djúp
kyrrð yfir bekkinn, þar sem liver vinn-
ur eftir sínum eigin hugmyndum.
Öðru máli gegnir aftur með alls kon-
ar mótun og gerð ýmissa stærri muna,
þar sem mörg börn þurfa að vinna
saman. Þar taka við meiri erfiðleikar.
Ekki komast allir að sandkassanum
eða kennaraborðinu, og ekki eru allir
jafn kappsfullir við starfið. Eins og
við allt flokkastarf, ríður mest á að
allir í hópnum viti, hvað á að gera. Og
hér getur það verið heppilegt að láta
eitthvað af börnunum vinna að allt
öðru verkefni en því, er bekkurinn
hefur valið sér. Og það er í þessu efni
mjög mikilvægt, að kennari og nem-
endur komi sér saman um viss grund-
vallaratriði, sem fara ber eftir við
flokkastarfið, annars getur aganum og
regluseminni í bekknum verið hætt.
Þessar reglur verður svo að virða. Þær
geta verið nokkuð breytilegar eftir því,
hvaða efni er verið að vinna með í
bekknum. Það þurfa t. d. að gilda
aðrar reglur við mótun en teiknun og
málningu. Ein regla er þó alltaf í gildi,
hvaða efni sem unnið er með: Verið
varkár, svo að það komi ekki fyrir, að
þið skemmið verk annarra.
Hið skapandi starf er í sjálfu sér
mjög agandi, ef þar er farið rétt af stað
og um það séð, að allt fari vel og skipu-
lega fram í byrjun og lok hvers tíma.
Hér verður kennarinn að láta til sín
taka og gera ákveðnar og skýrar kröf-
ur, svo að tímunum ljúki ekki með
hávaða og ringulreið. Þegar svo ber
við, að hið skapandi starf hefur slíkt í
för með sér, þá er það vegna þess, að
kennarinn skilur ekki hlutverk sitt.
Hann verður að sjá um, að allt efni sé
tiltækt í byrjun tímans. Hann verður
að sjá um, að börnin skipi sér í vinnu-
flokka eða velji hlutverk eitt og eitt.
Hann verður allan tímann að vera til-
búinn að hjálpa börnunum og leið-
beina, ef þau leita aðstoðar hans, og
hann verður alltaf að vita, hvað klukk-
unni líður, svo að nægur tími verði til
að taka allt saman og ganga frá hverj-
um hlut á sínum stað. Það má hvorki
vera of snemma né of seint. Oft vill
þetta skapandi starf ná fram á næsta
tíma, en reynslan hefur sýnt okkur, að