Heimili og skóli - 01.02.1956, Page 15
HEIMILI OG SKÓLI
9
í fyrsta og öðrum bekk voru sand-
kassarnir mikið notaðir. Leir, sandur,
pappír og pappi og annað verðlítið
efni var notað í bæi og þorp, hafnar-
mannvirki, landslag o. fl.
F.ldri bekkirnir notuðu einnig þessi
efni til þess að gera hugmyndir sínar
að veruleika á ýmsum sviðum. I einni
kennslustofunni gat að líta heilan
bóndabæ, sem byggður hafði verið eft-
ir nákvæmum mælingum og var ná-
kvæm eftirlíking af gömlum, dönsk-
um bóndabæ. Efnið var pappi, leir og
eldspýtnakassar.
I öðrum bekk mátti sjá gamla ridd-
araborg frá miðöldum, með skotaug-
um, vindubrú og meira að segja renn-
um, þar sem hinu brædda blýi var
hellt yfir óvinina. Þá má sjá þarna
eftirlíkingar af mannabústöðum frá
steinöld, negrakofa o. m. fl.
En í sambandi við þetta skapandi
starf í skólastofunni vakna nokkrar
spurningar:
1. Hve mikinn tíma er unnt að
taka til þessara starfa?
2. Hvernig er starf þetta skipulagt
svo, að agi og regla í bekknum fari
ekki út um þúfur, heldur sé byggður
á traustum grundvelli?
3. Hvernig er hægt að fá allt það
efni, sem nota þarf við slík vinnu-
brögð?
4. Hvernig er hægt að varðveita
unna og hálfunna muni, sem börnin
cru að búa til?
5. Hvernig á að fara að því að rækta
með börnunum hina innri þörf fyrir
vandvirkni, án þess að láta þá kröfu
koma að utan?
TÍMINN
Það er alls ekki svo auðvelt að finna
meðalveginn á milli þess tíma, sem
varið er til hinna frjálsu, skapandi
starfa og hins, er miðlun almennrar
þekkingar krefst. Sitt hvað má þó segja
um það frá almennu sjónarmiði. Við
höfum reynslu af því, að þetta skap-
andi starf verkar mjög örvandi á allt
skólastarfið, svo að segja má, að það
njóti allt góðs af því. En á liinn bóg-
inn er óhætt að segja það, að flestir
kennarar í Emdrupborg hafa gengið
með eins konar sektartilfinningu, ann-
að hvort fyrir þá sök, að þeim virðist,
að þeir hafi varið of miklum tíma til
liinna frjálsu starfa, eða þá blátt áfram
vegna þess, að þeim þykir sem þeir
hafi vanrækt aðrar námsgreinar til þess
að sýna góðan árangur á þessu sviði.
Annars er tæplega hægt að ákveða
nokkurn vissan tíma hverju sinni til
þessara frjálsu starfa. Það er því erfitt
að tengja þau við hinar bundnu náms-
greinar, sem standa alltaf á sínum stað
á stundaskránni. Það verður að koma
því þannig fyrir, að þegar eitthvert
verkeíni hrífur börnin, fái þau að
vinna að því. Sama máli gegnir, þegar
börnin eru að undirbúa dagskrá fyrir
einhverjar skólahátíðir. Næstu dagana
fyrir hlýtur sá undirbúningur að verða
að einhverju leyti á kostnað annarra
verkefna.
EFNIÐ
Allir bekkir geta veitt sér liti, pensla
og leir, og liver bekkur getur með lít-
illi fyrirhöfn aflað sér verðlítilla efna,
sem á að vera fyrirliggjandi í stofunni.