Heimili og skóli - 01.02.1956, Page 18
12
HEIMILI OG SKÓLI
Hann á að láta það koma fram, að
hann taki eftir því, hvort starfið er
nnnið af vandvirkni eða hroðvirkni,
og að hann fylgist af jafn miklum á-
huga með starfi þeirra, sem lítið geta,
og hinna, sem leikur allt í hendi. En
hér skiptir það meira máli en í öðrum
skólagreinum, að það er bezt að telja
orðin, sem töluð eru, bezt að fá börn-
in sjálf til að meta störf sín réttilega.
Þá dóma má svo milda eða herða eftir
atvikum.
Það þarf að fylgja hinu skapandi
starfi að búa yfir sjálfstæðri gagnrýni
á sín eigin verk, án þess að glata ánægj-
unni yfir því, sem unnið hefur verið.
Hlutverk kennarans er þá einnig að
geta viðurkennt það, sem vel er gert
í teikningu, stíl eðá mótaðri mynd og
fleiru, um leið 05 liann lokar ekki aug;-
unum fyrir göllunum. Jafnvel þótt
kennarinn hafi ekki um það mörg orð,
mun þessi afstaða hans þó hafa þau
áhrif á bekkinn, að krafan um vand-
virkni vex smátt og smátt innan frá,
án þess að hafa lamandi áhrif á hið
skapandi starf.
HÆFNI KENNARANS
Allmargir kennarar skólans töldu
sig í fyrstu ekki færa um að leggja inn
á braut hins skapandi starfs, vegna
þess að þeir töldu sig hvorki kunna að
teikna né móta. Og nú kemur spurn-
ingin: Þurfa kennararnir að vera sér-
menntaðir í þessum greinum til að
geta veitt slíku starfi forstöðu í bekkj-
um sínum?
Reynslan sýnir, að einnig í þeim
bekkjum, þar sem þessu var ekki til að
dreifa, getur hið skapandi starf þrifist
mæta vel, — ef kennarinn skilur þau
verðmæti, sem það býr yfir og ber sig
saman við kennara, er hafa meiri
reynslu. En hafi kennarinn ekki trú á
þessu starfi og þyki ekki vænt um það,
þá er öðru máli að gegna.
Það er greinilegur munur á þroska
bekkjanna með tilliti til ltins skapandi
starfs, munur, sem aðeins er hægt að
skilja með því að kynna sér, hvernig
kennarinn, sem börnin meta mest lít-
ur á þetta starf. Ef honum virðist það
aðeins vera tímasóun að fást við það,
verður þar lítið um framfarir og
þroska. En skilji hann hins vegar mik-
ilvægi þessara vinnubragða án þess þó
kunna verulega til starfsins, næst alltaf
nokkur árangur. En mestur árangur
næst þó, ef kennarinn sjálfur býr yfir
skapandi hæfileikum á þessu sviði og
hefur af því ánægju að leiðbeina í
þeim efnum. — Þar sem kennari og
nemendur vinna hlið við hlið í skóla-
stofunni, uppskera báðir hina ríkuleg-
ustu ávexti.
Hið skapandi starf liefur meiri og
dýpri, mótandi áhrif á skapgerðina en
flestar aðrar námsgreinar skólans. Upp
af því getur vaxið varanlegur áhugi,
sem aftur vinnur á móti hinum lam-
andi áhrifum véltækninnar á andlegan
þroska næstu kynslóða.
Bibltan.
Amerískur menntamaður, William Lyon
Phelps, hefur sagt: „Eg tel það ákaflega
mikils virði, bæði fyrir karla og konur, að
stunda háskólanám, en þó álít ég ómennt-
aðan mann betur farinn, ef hann hefur
kynnt sér biblíuna vel heldur en háskóla-
borgara, sem aldrei lítur í biblíuna."