Heimili og skóli - 01.02.1956, Síða 30

Heimili og skóli - 01.02.1956, Síða 30
24 HEIMILI OG SKÓLI ætlað þetta til skemmtunar, og efa ég ekki, að þeim tilgangi hefur verið náð. Þá er held- ur ekki að efa að höfuðtilganginum, sem vera mun fjármálalegs eðlis, hefur einnig verið náð. Sumt af þessu er meira og minna ógeðs- legur samsetningur, í æsandi reyfarastíl. Hef- ur þessi tegund myndasagna verið fordæmd harðlega. Annars er mairgt af þessu mein- laust og sumt af góðum toga spunnið. En öll þessi útgáfa miðar þó að því að venja börn og unglinga af því að lesa venjulegar bækur eins og venjulegt fólk. Þetta niðursoðna rusl, sem lítið þarf fyrir að hafa, venur börn á andlega feti, svo að þau hætta að lesa venju- legt lesmál. Þetta er sameiginlegt með öllu þessu niðursoðna dóti. Já, lióglífisstefna nú- tímans kemur víða við. Fallegar myndir gefa öllum bókum gildi, en þær geta aldrei komið í staðinn fyrir mál- ið sjálft, og þegar bækurnar verða lítið ann- að en myndir, þá eru þær ekki lengur það, sem þær eiga að vera. Vikuritin, mánaðarritin, barnablöðin, jafnvel dagblöðin eru farin að dekra við let- ina með því að birta þessar myndasögur, og þá einkum fyrir börn og unglinga. Og flestar eru þær nauðaómerkifegar, þótt þær séu kannski ekki saknæmar. Og jafnvel góðar sög- ur verða ómerkilegar með þessari meðferð. Það er farið að ganga of langt í því að auð- velda mönnum alla hluti. Af áreynslunni vaxa menn, en of mikið hóglífi er óvinur allrar menningar. H. J. M. Nýr námsstjóri. Menntamálaráðuneytið hefur nýlega aug- lýst laust nýtt námsstjóraembætti fyrir barna- og unglingaskóla. Er svo til ætlazt, að námsstjóri þessi hafi á hendi námsstjórn í tónlistarfræðslu skólanna. Auk almennrar kennaramenntunar er óskað eftir að umsækjandi hafi sérmenntun í skóla- söng og tónlistarfræðum. HEIMILI OG SKÓLI TÍMARIT UM UPPELDISMÁL Útgefandi: Kennarafélag Eyjafjarðar. Ritið kemur út í 6 heftum á ári, minnst 24 síður hvert hefti, og kostar árgang- urinn kr. 25.00, er gréiðist fyrir 1. júní. Útgáfustjórn: Hannes J. Magnússon, skólastjóri. Eiríkur Sigurðsson, yfirkennari. Páll Gunnarsson,[ kennari. Afgreiðslu- og innheimtumaður: Árni Bjömsson, kennari, Þórunn- arstræti 103, Akureyri. Ritstjóri: Hannes J. Magnússon, skólastjóri. Pósthólf 183. — Akureyri. Sími 1174. Prentverk Odds Björnssonar h.f. Fyrir unga kennara: 1. Kennari á að vera vingjarnlegur. 2. Kennari á að vera fágaður og frjálsmann- legur í framkomu. 3. Kennari á að vera einbeittur en þó hlýr. 4. Ivennari á að vera glaðlegur í framkomu. 5. Kennari á að vera réttlátur. 6. Kennari á að vera snyrtilegur. 7. Kennari á að tala skýrt og fallegt mál. 8. Kennari þarf að vera reglusamur. 9. Kennari þárf að reyna að skilja nemend- ur sína. 10. Kennari þarf að vera vel að sér og lesa mikið af góðum bókum. 11. Kennari má ekki tala óeðlilega hátt. 12. Kennari má ekki vera skapstirður. 13. Kennari má aldrei reiðast í návist nem- enda sinna. 14. Kennari verður að vera stjórnsamur. 15. Kennari á að vera fyrirmynd nemenda sinna í öllu. Allt hið sama mætti raunar segja um for- eldra og aðra uppalendur. I

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.