Heimili og skóli - 01.10.1956, Side 3

Heimili og skóli - 01.10.1956, Side 3
OG SKOLI TÍMARIT UM UPPELDISMÁL 15. árgangur September—Október 1956 5. hefti Hvar eiga perlurnar jmiar aá veráa til? Kaflar úr skólasetningarræðu, lítið eitt breyttir. 1. ----: Það eru einkenni okkar tíma, að við búum við margar og flóknar reglur og margþætta lagabálka. Þetta ber að surnu leyti vott um aukna menningu, þar sem leitast er við að tryggja sem flesta borgara gegn óirétti al.ls konar. En þetta er hins yegar veik- leikamerki. Borgurunum er ekki treyst, og það sjálfsagt að gefnu tilefni. þeim er ekki treyst til að lifa þannig saman, að árekstralaust verði. Sambúð- armenningin er ekki komin á svo hátt stig, að menn virði hvers annars rétt. Menn eiga ekki nægilega góðvild, til- litssemi og virðingu hvor fyrir öðrum til þess að á það sé hættandi, að treysta hverjum einstökum í því efni. Þannig verða til lög, reglur, boð og bönn. Það væri því kannski ekki út í blá- inn, að heimili og skólar hefðu sam- vinnu urn þetta, engu síður en nám ýmissa fræða, sem þó eru nauðsynleg. Ef vel tækist til með siðgæðisuppeldið — hið þegnlega uppeldi, mætti kann- ski eitthvað fækka reglunum, og gæti lífið þá orðið ofurlítið einfaldara. En hvers vegna brjóta menn lög og reglur? Ég held, að það komi fyrst og fremst af tvennu: Stundum hafa menn hag af því 1 bili, en hitt er þó oftar, að allir hafa af því hið mesta ógagn. Það gerir lífið óskemmtilegra og ófarsælla, og ekki sízt fyrir þeim, sem lögin og regl- urnar brjóta. Hin ástæðan er sú, að menn bera ekki na?gilega mikla virð- ingu fyrir öðiuin, og meðal annars þeim, sem setja reglurnar og eiga að gæta þeirra. En þriðja ástæðan, og kannski sú mikilvægasta, er sú, að þeir, sem brjóta lög og reglur, eru ekki nægilega vandaðir og góðir menn. Verulega góður og heiðarlegur maður, hvort sem hann er ungur eða gamall, brýtur ekki lög og reglur, sem okkur eru settar. Ef þið, kæru skólanemendur, brjót- ið regiur heimilisins, er það meðal annars vegna þess, að þið virðið for- eldra ykkar ekki nægilega mikið. Ef þið brjótið reglur skólans, þá er það vegna þess, að þið virðið ekki yfirboð- ara ykkar þar sem skyldi, og ef þið brjótið reglur á almannafæri, er það einnig vegna þess, að þið virðið ekki þá, sem þar eiga að gæta laga og réttar. Þetta ætla ég að biðja ykkur að gera ykkur ljóst, og ef það er rétt, að virð- ingarleysi fyrir lögum og reglum fari

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.