Heimili og skóli - 01.10.1956, Blaðsíða 8

Heimili og skóli - 01.10.1956, Blaðsíða 8
94 HEIMILI OG SKÓLI sem beittu vinnuskólaðferðinni. Og þar var margt lærdómsríkt að sjá, Þegar ég fór að heiman, var ég mjög Llynntur vinnuaðferðum í skólum og hafði ofurlítið beitt þeim í kennslu eins og fleiri íslenzkir kennarar. En í hjarta mínu óttaðist ég alltaf, að vinnuskólaaðferðin væri svo vanda- söm, að hún mundi ekki vera við hæfi allra kennara. Aðeins hæfustu kenn- arar gætu beitt ihenni með góðum ár- angri. Þessi skoðun mín byggðist með- al annars á því, hve fáir hafa fetað í fótspor Gautaborgarkennaranna í þessu efni. En skoðun mín breyttist talsvert í þessari ferð, og verður greint frá því síðar. Tvennt til fyrirmyndar. Tvennt er það, sem ég öfunda norska kennara mjög af. Annað er lúðrasveitirnar í skólunum. Þeir hafa lúðrasveitir í einkennisbúningum í nærri því öllum barnaskólum. Þessar lúðrasveitir koma fram við öll hátíð- leg tækifæri, og þó einkum á þjóðhá- tíðardaginn, því að þá taka allir skólar þátt í skrúðgöngu hver undir sínum fána. En hvernig eignast skólarnir öll þessi dýru hljóðfæri? Það eru stofnuð foreldrafélög til að safna fé fyrir hljóð- færin. — Margir efnamenn leggja þar fram ríflegan skerf. Þetta sameig- inlega áhugamál myndar kynningu milli foreldranna og skólans. Mér telzt svo til, ef við ætlum að eignast svona blásturshljóðfæri handa okkar skólum, þá kosti þau 70—80 þús. krónur. Það er því ekki auðvelt að feta þarna í fót- spor frændaj okkar, Norðmanna. Hitt atriðið, sem þeir standa okkur langtum framar í, eru kennslubæk- urnar. Norskar kennslubækur eru góð- ar og smekklegar og fara batnandi. En miklu fé eyða Norðmenn í útgáfu kennslubóka. Utgáfan er frjáls og keppa útgáfufélögin um að hafa sem beztar og fullkomnastar bækur í boði. Þar eru hvorki sparaðar góðar myndir né góður frágangur. Þeir fá listamenn sína til að myndskreyta bækurnar. Og öll bókskreyting Norðmanna er þjóð- lesr. Reikningsbækur. Um reikningsbækurnar er mjög hörð samkeppni. Undanfarin ár hafa reikningsbækur Ragnhildar Sohr ver- ið mest útbreiddar, en nú sækir ný reikningsbók fast fram. Heitir hún „Nu regner vi“ og er kennd við aðal- höfund sinn Aam. Johannesen. Báðar þessar bækur hafa verið gefnar út á ný á þessu ári í endurbættum útgáfum og mjög til þeirra vandað. Eitt hefti er fyrir hvert ár miðað við námsskrá skólanna og aukáhefti handa þeim, sem skara fram úr. Ég fékk þá hug- mynd, að reikningsbókin „Nu regner vi“ sé að ná meiri og meiri útbreiðslu. En báðar eru þessar reikningsbækur mjög vandaðar. Ragnhildur Sohr hef- ur einnig á síðasta ári gefið út kennslufræði (Metodikken i regning) til að nota með bók sinni. Nú vantar okkur reikningsbækur í samræmi við námsskrána. Hvers vegna staðfærum við þá ekki þessar reikn- ingsbækur og gefum þær út? Notum okkur reynslu Norðmanna í þessu efni og sníðum þær eftir okkar náms- skrá? Ég hygg, að það væri viturlegt,

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.