Heimili og skóli - 01.10.1956, Blaðsíða 10
96
HEIMILI OG SKÓLI
Nýi barnaskólinn á Hlöðum i Þrándheimi (Lcedeskolen).
eingöngu fyrir 1—3 bekk, byggja
Norðmenn líka með 6 kennslustofum.
Eru þeir mjög skemmtilegir.
Mér var sýndur Ekebergsskólinn í
Osló, sem er alveg nýr og tók til starfa
í vor. Hann hafði alla kosti þessara
nýju skóla. Þar ihefur verið myndað
foreldrafélag og er fyrsta verk þess að
safna fé fyrin bræðsluofni, svo að hægt
verði að hafa leirbrennslu í skólanum.
Næst verður safnað fyrir blásturshljóð-
færum handa lúðrasveit. 'Þessir nýju,
norsku skólar kosta 2—3 milljónir
í norskum krónum. Svarar það til 5—
6 milljóna hjá okkur.
Ég sá nýjan framhaldsskóla í Þránd-
heimi, sem er mjög fullkominn að öll-
um útbúnaði. Hann er hvort tveggja í
senn gagnfræðaskóli og menntaskóli.
Hann kostaði 2,6 milljónir króna. En
það, sem er sérkennilegt við skipulag
þessa skóla er það, að þar hefur ekki
hver bekkur sína stofu, heldur hefur
hver námsgrein sína stofu, og nemend-
urnir flytja sig á milli stofanna. í
hverri stofu er bókaflokkur í einni sér-
grein lranda öllum nemendunum, svo
að þeir þurfa ekki að koma með
bækur að heiman. í göngunum er
læst geymsluhólf fyrir hvern nemanda,
þar sem hann getur geymt bækur og
annað smávegis. Virðist þetta skipulag