Heimili og skóli - 01.10.1956, Qupperneq 11
HEIMILI OG SKOLI
97
Vinnubrögð norskra barna i átthagafreeði.
losa nemendur að mestu við skólatösk-
urnar.
Eg get hugsað mér, að þetta geti
verið gott fyrirkomulag fyrir þroskaða
nemendur í framhaldsskólum, en tæp-
lega í barnaskólum. Einkum er þetta
gott fyrir efnafræði, eðlisfræði og
landafræði. Þar eru kennararnir kyrrir
allan daginn og taka við hverjum
bekk eftir annan. Er mjög fullkominn
útbúnaður til tilrauna í þessum grein-
um. í landafræðistofu eru ekki aðeins
landakort, heldur einnig kvikmynda-
vél og skuggamyndavél með filmu-
söfnum. Norðmenn leggja mikla
áherzlu á að útbúa skólana með full-
komnum kennslutækjum.
Nýjungar í kennslu.
Vík ég þá aftur að nýrri kennsluað-
ferð í norskum skólum, er ég kynntist.
Um kennslutilhögun virtist mér eldri
kennararnir nota mest hina gömlu að-
ferð með lexíulestri, yfirheyrslum og
samtölum. En hinir yngri notuðu
meira vinnubækur, leirmótun, korta-
gerð og teikningar í anda vinnuskól-
ans. Og það vakti athygli mína, að æf-
ingarkennararnir við kennaraskólana
beittu yfirleitt vinnuskólaaðferðinni.
Virðast Norðmenn ætla á þann hátt að
koma þessum nýjungum inn í skóla
sína, og er það hyggilegt. Þá leið ætt-
um við einnig að fara. Það er ekki að-
eins skemmsta leiðin, iheldur eina leið-
in, sem fær er, til þess að koma nýj-
ungurn inn í barnaskólana.
Flokkavinnu æfingakennara kynnt-
ist ég bæði í Þrándheimi og Osló. Ég
kom í tíma til ungs manns í Þránd-
heimi, sem beitti vinnuskólaaðferð og
lét börnin vinna í flokkum. Hann fjöl-
ritaði verðlaunablöð handa flokkun-
um, en börnin lituðu þau. Eitt af þess-
um verðlaunablöðum var fyrir kyrrð,