Heimili og skóli - 01.10.1956, Side 18

Heimili og skóli - 01.10.1956, Side 18
104 HEIMILI OG SKÓLl kæmu hingað heim að hausti, eftir nokk- urra vikna dvöl á íslandi, og segðu að skólastjórinn hefði ekki ýkt, ísland væri. ævintýraheimur. Og þeim, sem horfa vildu inn í þessi huldulönd, mimdi María sýna allan hópinn, þar sem smáhestar tölta með hann eftir grænum grundum, en að baki rísa hvítir jöklar og blá fjöll. Ollu öfugt snúið. Kjötkveðjuhátíðin — karnevalinn — er Jörfagleði mikil suður hér. Verða þá und- ur mikil og skrípi, drykkjur ákaflegar og dansar stignir. Ég var að hugsa um að bregða mér suður ;til Kölnar á karneval, því að ég hafði sannspurt, að eldar gleð- skapar myndu loga þar glatt, og mig lang- aði náttúrlega í svallið. En er hingað var komið sögðu menn: „Þú kemur mátulega í karnevalinn.“ — Og úr því að hingað var komið á annað borð, þá nennti ég ekki að fara að æða til Kölnar, eiga á hættu að koma þaðan timbraður eftir ókristilegt svall, en missa hér af hóflegri skemmtan. Þess vegna ákvað ég að halda mína Jörfagleði hér. Svo hófsamlega var á haldið, að hér var ekki nema einum degi varið til sjálfrar hátíðarinnar, en víða annars staðar stend- ur hún í þrjá sólarhringa. Þennan dag voru hér skemmtanir ýmislegar, og vit- anlega öllu öfugt snúið, siðareglur allar úr gildi, og mátti hver átölulaust gera það eitt, sem honum gott þótti. í Austurlöndum. Forboðar þess, sem koma skyldi, voru augljósir á hádegi. Það er venja, að nem- endur skiptast á um að annast framreiðslu í matsal, en nú sátu frammistöðumenn eins og matrónur við borð sín, en kennar- ar sveittust með kyrnur og kollur frá eld- húsi til matborða. Voru margir klæddir, svo sem að sæmdi þeirra stétt, sumir í kjól og hvítu með pentudúka á handleggjum, aðrir skrýddir svuntum stórum. Var óspart á þeim níðzt, svo að þeir voru á sí- felldum þönum. Hávaði gerðist mikill í matsal, reykingar upphófust, lestur blaða, og annar sá ósómi, sem alla daga er út- lægur, en hins vegar urðu hvorki áflog né hnútukast, ropar engir né önnur búk- hljóð, kokkar ekki ærumeiddir, og má því segja, að gamall vegakarl af Holtavörðu- heiði og háseti á síldardalli hafi séð hann svartari. Klukkan 4 hófst skemmtun yngri bam- anna. Var þar athyglisverðast leikrit, er- börnin höfðu samið um það, hversu sá klóki Abú Hassan bjargaðist úr fjárþröng mikilli. Var mjög gaman að þessu, einkum vegna söngvanna og hljóðfæraleiksins, en notaðar voru blokkflautur, tré- og málm- slagverk. Tókst með þessu öllu að láta músikkinna fá einræmislegan, austur- lenzkan blæ, sem fór vel við hin purkun- arlausu klækjabrögð Hassans, feitan sol- dáninn og meyjarnar, er stigu dans í dyngju drottningar hans. Hafði söngkenn- arinn Siegler æft þetta, og luku menn lofsorði miklu á störf hans. Uppvakningar og afturgöngur. Kvöldskemmtun kennara og eldri nem- enda hófst klukkan hálf níu. Svo hafði verið ráð fyrir gert, að gervi ættu helzt að minna á eitthvað úr bókmenntunum, helzt kunnar söguhetjur. Var þó vítalaust, ef út af var brugðið, og fyrir því var málað á mig skegg, stráhattur mikill fxmdinn, mittislindi rauður og annað tiltækilegt, svo að ég yrði brúklegur Mexíkani. Hins vegar fór Kurt í peysu mikla, sem hann hafði haft með sér utan af íslandi, límdi á sig skegg, málaði fisk á spjald, fékk sér veiðarfæri og gerðist þannig söguhetja Hemingways í „Gamli maðurinn og hafið“. Þegar inn í hátíðasalinn kom, bar margt annarlegt fyrir augu. Salurinn var skemmtilega skreyttur, og allir, sem þar voru saman komnir, voru í hinum furðu- legustu gervum, sumum mjög vel gerðum. Þar var Mefistofeles úr Faust, Nomimar úr Machbeth, Þrír slæpingjar úr Tortilla Flat (Kátir voru karlar) Steinbecks,Uglu-

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.